Systir mánaðarins – september 2012

Heim / Fréttir / Systir mánaðarins – september 2012

Í dag eru tæplega 3000 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.

steini_systirNafn? Steinn Einar Jónsson

Starf? Veitingamaður á The Laundromat Cafe

Aldur? 25 ára

Hvenær gekkstu í Systralagið? Það var afskaplega almennilegur drengur sem stöðvaði mig í Austurstrætinu. Hann kynnti mig snögglega fyrir starfinu og að sjálfsögðu skráði ég mig.

Af hverju að styrkja konur? Af því þess þarf!  Það eru margir hlutir að í þessum heimi og það er á okkar ábyrgð sem höfum tök á að leggja okkar af mörkum. Allstaðar í heiminum búa konur við ójöfnuð. Á Íslandi birtist hann m.a. í kynbundnum launamun, útilokun kvenna á barneignaraldri frá ábyrgðarstöðum á vinnumarkaði og óraunhæfum staðalímyndum sem börnin okkar sjá daglega og mótast eftir. Fjölmargt annað og ógeðfelldara á sér stað út um allan heim. Sýruárásir, umskurður á kynfærum kvenna, mansal, kynlífsþrælkun, barna-brúðir, búrkur og fleira og fleira. Ef ég get á einhvern hátt átt lítinn þátt í að veita konum aukin tækifæri til lífshamingju með því að láta jafnvirði eins Mojito renna í UN Women á mánuði fyndist mér helvíti skítlegt að gera það ekki.

Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér? Jafnrétti er sú grunnhugmynd sem samfélagið okkar þarf að byggjast á! Hún gerir skilyrðislaust þá kröfu að hvert barn sem fæðist í þennan heim búi við þau ytri skilyrði að það hafi tækifæri til að þroskast, dreyma, upplifa og skynja heiminn sem þann fallega stað sem hann getur verið. Jafnrétti býr innra með þér og það ber að rækta. Ég held að allir séu í eðli sínu góðir og fæðist með hvata til samkenndar og ástar og að jafnrétti sé okkur eðlislægt. Samfélagið setur okkur svo í flokka: strákar, stelpur, hommar, lesbíur, svartir, hvítir, örvhentir og þar fram eftir götunum. Jafnrétti felst í að hafna þessari flokkun algjörlega og átta sig á því að við erum öll eitt og höfum öll rétt á að dafna og þroskast eins og okkur er ætlað.

Hvað telur þú að þurfi að gera til að ná fram jafnrétti í heiminum? Ég held að menntun sé lykillinn, að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja aðgengi allra að menntun. Það er auðvelt að níðast á þeim sem ekki geta varið sig og menntun er sterkasta vopnið við flestu því sem bjátar á í okkar blessuðu veröld. Og svo þarf að hrista upp í fólki sem er aflögufært, við sem búum við þessa velsæld, við EIGUM að láta okkur þessi mál varða! En auðvitað er mikilvægast að taka á móti lífinu og öllum sem þú mætir í því með jákvæðni og opnum huga, því bylting hugans byltir heiminum 

Related Posts