Í dag eru tæplega 3000 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.
Nafn: Lovísa Eiríksdóttir
Starf: Landsvirkjun – Markaðs- og viðskiptaþróun.
Aldur: 25 ára.
Hvenær gekkstu í Systralagið: Haustið 2010.
Af hverju að styrkja konur: Því ég vil að konur fái sterkari rödd. Ég tel að það sé nauðsynlegt að nýta vizku og hyggindi kvenna til að búa til betra samfélag og betri heim. Þetta tel ég að sé mögulegt ef við vinnum öll saman að þessu mikilvæga markmiði.
Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér: Virðing – sem er forsenda fyrir betri heimi.
Hvað telur þú að þurfi að gera til að ná fram jafnrétti í heiminum: Ég tel að það þurfi algjöra hugarfarsbreytingu til að ná fram jafnrétti í heiminum. Þó við Íslendingar séum langt á veg komin í jafnréttismálum miðað við aðrar þjóðir í heiminum er enn töluvert langt í land. Baráttan skiptir öllu máli og miklvægt er að gefa hana aldrei upp á bátinn fyrr en markmiðinu er náð, þar sem markmiðið er að sjálfsögðu jafnrétti. Sem foreldri vona ég að barnið mitt læri og lifi í samfélagi þar sem borin er jafnmikil virðing fyrir báðum kynjum, þar sem virðing og jafnrétti eru helstu dyggðirnar – Þess vegna vil ég taka þátt í baráttunni og þess vegna er ég femínisti.