Sýrlenskar konur krefjast friðar í heimalandi sínu

Heim / Fréttir / Sýrlenskar konur krefjast friðar í heimalandi sínu
Asset1 womenofsyria en 1
Tveggja daga fundi um þátttöku kvenna í friðarviðræðunum í Sýrlandi sem UN Women og ríkisstjórn Hollands boðuðu til í Genf lauk þann 14. janúar með sameiginlegri yfirlýsingu aðgerðarsinna og sýrlenskra kvenna úr borgaralegu samfélagi.
Yfirlýsingin felur í sér ákall um stuðning við hið pólitíska ferli og hvatningu til allra aðila um að sigrast á ágreiningum sínum og komast að samkomulagi um frjálst Sýrland þar sem ríkir lýðræði og mannréttindi eru virt. Í því felst einnig að réttindi karla og kvenna séu metin til jafns og að valdhafar virði rétt sýrlenskra kvenna til þátttöku.
Fundurinn var hluti af átaki UN Women um að styðja við sýrlenskar konur í friðarviðræðunum í Sýrlandi. Auk þess er átakinu ætlað að skapa vettvang til að raddir kvenna fái að heyrast og til að auka veg þeirra og þeirra sjónarmiða í friðarviðræðum. Þessar aðgerðir eru í samræmi við ályktanir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr 1325 og 2122 og Genfaryfirlýsingar I (Geneva Communiqué I), sem kalla eftir fullu aðgengi og þátttöku kvenna í friðarferlum.
Um ástandið í Sýrlandi sagði Sabah Alhallak, einn þátttakandi fundarins, við fjölmiðla: „Við getum ekki haldið áfram að þegja um þá atburði sem eiga sér stað í Sýrlandi, dagleg dauðsföll, gríðarlega eyðileggingu, hungur, hundruð þúsunda fjölskyldna sem flúið hafa heimili sín og útbreiðslu hryðjuverka, ofbeldis, mannrána, eyðileggingu og sjúkdóma, sérstaklega meðal barna“.
Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra UN Women, þakkaði þeim konum sem lagt höfðu á sig langt og hættulegt ferðalag til að taka þátt í fundinum og fjallaði um framlag þeirra til að leita lausna við að auka öryggi, réttindi og reisn Sýrlendinga. „Hlutverk kvenna við að skapa grundvöll fyrir varanlegum friði og lýðræði í Sýrlandi þar sem mannréttindi eru virt, er afar þýðingarmikið. UN Women mun halda áfram að vera öflugur samstarfsaðili sýrlenskra kvenna um að styrkja þeirra sameiginlegu rödd og aðgerðir í þágu friðar í hinu pólitíska ferli“.
Samantekt á yfirlýsingunni
Við erum sýrlenskar konur með fjölbreyttan bakgrunn og úr ólíkum stöðum sem erum fulltrúar fyrir breitt svið samtaka kvenna og hins borgaralega samfélags. Við höfum komið saman til að setja saman þessar kröfur og forgangsatriði sem byggja á reynslu okkar af þjáningum Sýrlendinga, sem orðnar eru óbærilegar. Við deilum þeirri von sýrlensku þjóðarinnar að Genf II ráðstefnan verði áhrifamikið skref í þá átt að binda enda á ofbeldið og blóðbaðið í Sýrlandi.
Við trúum því að Genfaryfirlýsingin I skapi grundvöll fyrir endalok ofríkis og til að koma á breytingum í átt að borgaralegu, lýðræðislegu, fjölflokkasamfélagi og sameinuðu ríki.
Til þess að binda enda á átök, stuðla að friðarferlum og bæta ástand mannúðarmála er nauðsynlegt að innleiða Genfaryfirlýsinguna I. Yfirlýsingin felur í sér að stöðva átök og hindra frekara ofbeldi og gíslatökur fólks sem rænt hefur verið af einhverjum hinna fjölmörgu vopnuðu hópa. Farið er fram á að mannúðar- og læknisaðstoð, undir alþjóðlegu eftirliti, verði gerð aðgengileg öllum sem á þurfa að halda sem og að nú þegar verði gripið til ráðstafana um að stöðva kynbundið ofbeldi og taka upp kynnæma stefnu til að vernda konur og stúlkur gegn kynferðislegri misnotkun, hjónabandi stúlkna, mansali og nauðgunum.
Í yfirlýsingunni kemur fram að koma verði á samstarfi við nágrannaþjóðir um að tryggja brottvísun bardagamanna sem ekki eru af sýrlensku bergi brotnir, binda enda á ferðatakmarkanir aðgerðarsinna og stjórnmálamanna og tryggja örugga endurkomu flóttamanna til sinna heima auk þess að gera ráðstafanir um að bæta tjón, sameina fjölskyldur og um leið tryggja jafnrétti kynjanna. Binda þarf tafarlaust enda á liðssöfnun barnungra hermanna og koma á menntaáætlun sem ekki er byggð á hugmyndafræði heldur fylgir nútímalegri, samræmdri námskrá þar sem mannréttindi og jafnrétti allra borgara eru í hávegum höfð um leið og tekið er tillit til þarfa þeirra barna sem ekki hafa notið skólagöngu. Leysa þarf upp alla gerræðislega refsidómstóla og Sharia-nefndir og koma á borgaralegum lögum um allt Sýrland.
Koma þarf á fót landsáætlun um að vernda viðkvæmar stoðir ríkisins svo sem efnahag, öryggi, stjórnsýslu og menningarverðmæti auk annarra innviða landsins. Innan öryggis- og löggæslustofnana þarf að fara fram endurskipulagning og umbætur sem eru í samræmi við alþjóðleg viðmið um mannréttindi og kynnæmi og að lokum þarf að sækja til saka og gera ábyrga fyrir gjörðum sínum þá sem gerst hafa sekir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu.
Kröfur í friðarferlinu fela meðal annars í sér að tryggja þurfi tjáningarfrelsi og trúfrelsi, staðfesta þurfi að ríkið byggist á friðsamlegum stjórnarskiptum, aðskilnaðs valds, sjálfstæðs dómsvalds og hlutleysi hersins. Hafna þarf öllum pólitískum lausnum sem byggjast á þjóðerni, sterkum tengslum trúar og stjórnmála eða ofríki hersins. Stjórnarskráin þarf að tryggja jafnrétti allra Sýrlendinga í öllum sínum fjölbreytileika og gera þarf refsiverða alla mismunun og ofbeldi í garð kvenna. Hvetja þarf alla sem koma að átökunum til að hætta að styða við hernaðaruppbyggingu og koma þarf á afvopnunarferli.
Kröfur sem tengjast aðkomu kvenna í friðarferlinu eru meðal annars að Sameinuðu þjóðirnar beiti alþjóðasamfélagið og samningsaðila þrýstingi um að tryggja að a.m.k. þriðjungur þeirra sem taka þátt í friðarferlinu og sitji í nefndum því tengdu séu konur. Tryggja þarf að fulltrúar samtaka kvenna og borgaralegs samfélags fái að fygljast með samningaviðræðunum og að konur komi að stjórnarmyndun, stjórnarskrárnefnd, samningu kosningalöggjafar og séu þátttakendur í réttarkerfinu og sveitastjórnum. Skipa þarf sýrlenskan jafnréttisráðgjafa í samninganefndina og samræma þarf aðgerðir þeirra sem koma að jafnréttismálum. Byggja þarf auk þess upp hæfni sýrlenskra kvenna til samningaviðræðna og friðaruppbyggingar.
-Þýðing Gyða Einarsdóttir
Related Posts