Svellið er nýtt hlaðvarp UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Svellið er nýtt hlaðvarp UN Women á Íslandi

„Ungt fólk elst upp í mjög flóknu og síbreytilegu umhverfi þar sem mörk raunheima og samfélagsmiðla, eða netheima, eru ekki alltaf skýr,” segir Ellen Calmon, verkefnastjóri og viðmælandi í Svellinu, hlaðvarpi sem hefur göngu sína í dag.

Fyrsti þáttur ber titilinn „Hjálpaðu mér upp“ og ræða Ragnar Jón Humi Ragnarsson grunnskólakennari, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, og Ellen Jacqueline Calmon, verkefnastjóri, stafræna umhverfið sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og jákvæðar og neikvæðar hliðar netsins.

 

Börn þurfa ekki að leita að skaðlegu efni til að sjá það

Í þættinum er meðal annars rætt um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu barna. Foreldrar séu of uppteknir af því að takmarka skjátíma barna sinna en ekki endilega að gæta að efninu sem börnin komast í snertingu við. Skúli Bragi segir ‏það ekki tilviljunum háð hvaða efni fólk sjái inni á sínum miðlum.

„Það er auðvitað búið að reikna þetta allt saman út frá því hver við erum og upplýsingunum sem safnað er um okkur sem þýðir að einhver mýkt eða einhver miðja í einhverju samtali, hún nær ekkert í gegn. Það er fyrst og fremst verið að reyna að virkja hjá okkur einhverjar tilfinningar. Þannig ég þarf að ögra til að ná í gegnum allt þetta efni, til að þetta nái flugi,” segir Skúli Bragi og vísar þar til efnis sem áhrifavaldar framleiða og setja inn á miðlana. Hann bendir jafnframt á að samfélagsmiðlar miðli ákveðnu efni til barna byggt á kyni.
„Svo spyrja drengir sig, bíddu ég er ekki að tengja við þetta, en efnið sem ég fæ og fyrirmyndirnar sem ég fæ eru fyrirmyndir sem ögra. Ég þarf að leita mjög agressíft til að finna jafnvel aðrar fyrirmyndir,” segir Skúli Bragi.

 

Fólk úr öllum áttum ræðir allskonar

Hlaðvarpið Svellið kafar ofan í þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í nútímasamfélagi. Sem samfélag höfum við öll hagnast á jafnrétti; menntunarstig þjóðarinnar er hátt, atvinnuþátttaka mikil og hagvöxtur hefur aukist. En hvað mætti betur fara? Í Svellinu fær leikkonan og þúsund‏þjalasmiðurinn ‏Birna Pétursdóttir til sín frábært fólk úr öllum áttum til að ræða alls konar: föðurhlutverkið, grín og gamanmál, íþróttir, 80/20 regluna, geðheilsu og hvernig maður nær árangri í lífinu.

Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Baldur Ragnarsson stý‎rir upptökum og leikstjórn myndbands er í höndum  Steinars Júlíussonar. Þættirnir koma út vikulega, verða aðgengilegir á hljodkirkjan.is, Spotify og á Youtube. Næsti þáttur kemur út 30. janúar og fjallar um mál málanna: íþróttir!

 

Þátturinn er aðgengilegur í heild sinni hér.

Related Posts