Súdan: Heilu kynslóðir kvenna og stúlkna munu týnast vegna áfalla sem þær hafa upplifað

Heim / Fréttir / Súdan: Heilu kynslóðir kvenna og stúlkna munu týnast vegna áfalla sem þær hafa upplifað
Scenes from the Rubkona IDP Camp in South Sudan (Photo: UN Women/James Ochweri)
Konur í Rubkona flóttamannabúðunum sækja vatn. Mynd: UN Women/James Ochweri

Í apríl 2023 brutust út blóðug átök í Súdan milli Súdanshers (SAF) og Rapid Support Forces (RSF). Vopnuð átök hafa geisað í ríkinu nánast linnulaust frá árinu 2003, sem oft hefur verið kallað „gleymda stríðið.“ Milljónir eru á flótta í landinu (e. Internally displaced people), 70% þeirra eru konur og börn, og meira en 24 milljónir eru í mjög brýnni þörf fyrir neyðaraðstoð. Sífellt fleiri búa við langvarandi matarskort og hafa alþjóðlegar mannúðarstofnanir lýst ástandinu í Súdan sem einni stærstu mannúðarkrísu heims.

FO-herferð UN Women á Íslandi árið 2024 mun styðja við konur og stúlkur í Súdan sem búa við gríðarlega erfiðar aðstæður vegna átakanna þar. Öryggismiðstöðin er bakhjarl FO-herferðarinnar í ár.

Staðan í ríkinu
Mynd: OCHA / Alioune Ndiaye

Með algjöru hruni löggjafarvaldsins og mikilvægra stofnana er fátt sem verndar almenna borgara fyrir mannréttindabrotum. Í þeim héruðum þar sem virk átök eru hefur fregnum um kynferðislegt ofbeldi fjölgað, sem og fregnum um árásir á einstaklinga vegna uppruna (e. ethnicity), grófum brotum á réttindum barna og tilkynningum um mannrán og þjófnað.

Samhliða því búa milljónir við mjög skertan aðgang að lífsnauðsynjum á borð við matvæli, vatn, húsaskjól, heilbrigðisþjónustu, pening og eldsneyti. Tækifæri til að afla sér lífsviðurværis eru einnig hverfandi. Food and Agriculture Organization (FAO) og WFP segja matvælaóöryggi vera með hæsta móti í Súdan og fer staðan versnandi. U.þ.b. einn af hverjum þremur íbúum Súdan býr við fæðuskort.

Vannæring er vaxandi vandamál í öllum héruðum Súdans, sérstaklega á meðal barna og barnshafandi kvenna. Um 70% heilbrigðisstofnana í Súdan eru óstarfhæf og 2/3 íbúa landsins hafa ekki greiðan aðgang að læknisþjónustu. Ástandið er slíkt að búist er við því að farsóttir á borð við malaríu, kóleru, beinbrunasótt og mislinga munu brjótast út mjög víða með tilheyrandi mannfalli.  

Áhrifin á líf kvenna og stúlkna

Súdanskar konur eru gríðarlega berskjaldaðar fyrir kynferðislegu- og öðru kynbundnu ofbeldi og eru í raun ítrekað útsettar fyrir ofbeldi; fyrst þegar vopnuð átök færast að heimilum þeirra og vígamenn beita þær kynferðislegu ofbeldi, næst þegar þær flýja heimili sín í leit að öryggi, og loks þegar þær finna athvarf hjá öðrum (e. host community) eða í flóttamannabúðum. Samkvæmt landsskrifstofu UN Women í Súdan eru mestar líkur á að hægt sé að koma í veg fyrir að ofbeldi sé beitt í þriðja tilfellinu með því að veita kvenmiðaða neyðaraðstoð. Samkvæmt UN Women hafa komið upp um 5 milljón tilfella kynferðislegs- og kynbundins ofbeldis í Súdan. Þetta eru þó aðeins þau tilfelli sem vitað er um – rauntölur eru líklega margfalt hærri.

Móðir og barn í Súdan. Mynd: UNHCR / Andrew McConnell

Konur og stúlkur eru 30% ólíklegri til þess að fá mannúðaraðstoð en karlmenn. Þetta er að miklu leyti vegna veikrar stöðu súdanskra kvenna í mjög „patríarkísku“ samfélagi. Yfirvofandi hungursneyð mun hafa hörmulegar afleiðingar fyrir fjölda kvenna og barna til frambúðar.
„Við sjáum hópa af lifandi beinagrindum, það er ástandið sem við erum að glíma við núna. Hálf þjóðin, um 25 milljónir, býr við fæðuóöryggi. Þar af eru 18 milljónir á barmi hungursneyðar og 5 milljónir eru þegar komnar á það stig. Þegar það ríkir fæðuóöryggi verða konur og stúlkur alltaf verst úti. Við höfum sérstakar áhyggjur af barnshafandi konum og konum með börn á brjósti, en líka konum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og eru ekki í andlegu eða líkamlegu ástandi til að takast á við þessar hörmulegu aðstæður,“ segir Richard hjá UN Women Súdan.

Konur eru oftast of uppteknar við að sinna börnum, eldra fólki, slösuðum og veikum til að geta orðið sér úti um upplýsingar, þ.m.t. upplýsingar um öruggar flóttaleiðir og matvælaaðstoð.

UN Women í Súdan hefur miklar áhyggjur af jaðarsetningu kvenna og stúlkna og aftengingu (e. disengagement). Heilu kynslóðir kvenna og stúlkna munu týnast vegna þeirra miklu líkamlegu, andlegu og efnahagslegu áfalla sem þær hafa upplifað. Þá hefur stór hluti stúlkna ekki getað sótt skóla í meira en ár.

Konur á flótta (Female IDPs)
Frá forvarnarþjálfun vegna kynbundins ofbeldis (Gender Based Violence) sem haldin er af UN Women og samstarfsaðilum í Blue Nile, Súdan. 2. febrúar 2023. Mynd: UNEP Súdan
Á flótta í Súdan. Mynd: UNEP Súdan

Andlegu áföllin sem fólk gengur í gegnum í stríði hafa varanlegar afleiðingar fyrir fjölskyldur og samfélagið í heild. Karlmenn upplifa gríðarlega skömm þegar þeir missa vinnuna, geta ekki verndað fjölskyldu sína gegn árásum eða séð þeim fyrir nauðsynjum. Þetta á sérstaklega við í svo patríarkísku samfélagi sem Súdan er. Þessar aðstæður ýta undir heimilisofbeldi og í flestum tilfellum á ofbeldi gegn konum og stúlkum sér stað innan veggja heimilisins.

Konur og stúlkur sem neyðast til að flytja heimili sín enda oftast inni á öðrum fjölskyldumeðlimum eða ókunnugum. Aðrar finna skjól í flóttamannabúðum. Þegar svo miklir fólksflutningar eiga sér stað á skömmum tíma verður óhjákvæmilega til núningur á milli hópa. Í tilfelli Súdans auka ólík trúarbrögð og  ólíkir ættbálkar á núninginn.

Í flóttamannabúðum er ekki sérstaklega hugað að sértækum þörfum kvenna og stúlkna, né öryggi þeirra. 99% þeirra er veita þjónustu til fólks á flótta eru heimamenn, oftast karlmenn, og eru skoðanir þeirra litaðar af reglum og hefðum samfélagsins. Það er því mikilvægt að alþjóðlegar stofnanir á borð við UN Women séu til staðar, veiti þjálfum og hugi að því að þörfum kvenna og stúlkna sé mætt.

Hvað gerir UN Women í Súdan?


Verkefni UN Women í Súdan hafa breyst með tilkomu stríðsins og miðast að mestu leyti núna að því að veita mannúðar- og neyðaraðstoð.

Meðal þess sem UN Women gera í Súdan er:

  • Veita þolendum ofbeldis aðgengi að þjónustu í samstarfi við súdönsk félagasamtök (e. provide a connection between the survivor and services).
  • Vinna að því að koma upp one-stop-miðstöðvum fyrir konur og stúlkur á flótta.
  • Skrásetja og afla gagna um kynbundið ofbeldi svo hægt sé að sækja málin til saka á síðari tímum.
  • Bera kennsl á konur og stúlkur í viðkvæmri stöðu svo hægt sé að ábyrgjast að þær hljóti aðgang að mat og öðrum nauðsynjum.
  • Þjálfa starfsfólk félagasamtaka sem veita aðstoð til flóttafólks til að vinna bug á „men and boys first“ hugarfarinu.
  • Bera kennsl á konur með leiðtogahæfileika, efla þær og þjálfa upp í samningaviðræðum. Konurnar hittast fyrst í smærri hópum og ræða málin, komast að sameiginlegri niðurstöðu og kröfum. Þetta er hægt að nýta þegar verið er að semja um frið, fjármagn og aðrar lausnir í samfélagslegri uppbyggingu landsins.

Þú getur lagt þitt af mörkum

Með kaupum á FO vöru 2024 styður þú við konur og stúlkur í Súdan.

Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Ljósberi) UN Women á Íslandi styður þú við verkefni UN Women um allan heim, þar á meðal í Súdan. Þú getur einnig lagt til frjáls framlög:

Í gegnum AUR í númerið 123-839-0700

Leggðu til frjáls framlög í banka:

0537–26–55505

551090-2489

Related Posts