
UN Women hefur kynnt nýja stefnuáætlun sína. Mynd/Sayed Habib Bidell
UN Women hefur kynnt nýja stefnuáætlun sína fyrir árin 2026-2029. Stefnuáætlunin kemur á mikilvægum tímamótum, enda er heimurinn að bregðast konum og stúlkum ef litið er til allra mælikvarða jafnréttis, samkvæmt heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
UN Women undirstrikar að skuldbinding stofnunarinnar til að bæta stöðu kvenna og stúlkna á heimsvísu standi óbreytt. Stofnunin mun vinna áfram að jafnrétti í samvinnu við félagasamtök og stjórnvöld aðildarríkja. Aðeins með samvinnu verður hægt að byggja upp framtíð þar sem friður, umhverfissjónarmið og jöfnuður verða í forgrunni.
Í stefnuáætluninni er greint frá því hvernig UN Women mun áfram vinna að þríþættu umboði sínu (e. triple mandate) og auka stuðning sinn við innlendar og alþjóðlegar stofnanir. Með samþættri nálgun sem tengir saman ólíka samstarfsaðila og tengd málefni er stefnt að víðtækum og varanlegum áhrifum.
Hægt er að nálgast stefnuáætlunina í heild sinni hér.

