
Meira en þrjú og hálft ár eru liðin frá því að víðtæk innrás Rússlands í Úkraínu hófst og ellefu ár frá því að átökin brutust fyrst út. Stríðið heldur áfram að þróast til hins verra, tekur æ fleiri mannslíf, veldur víðtækri eyðileggingu á innviðum og samfélögum og neyðir milljónir til þess að flýja heimili sín. Þá leggur það efnahaginn í rúst og breytir víðáttumiklum landsvæðum í banvæn jarðsprengjusvæði.
Í Kænugarði gerðu nýlegar loftárásir það að verkum að alvarlegt rafmagns- og vatnsleysi var á svæðinu. Stórfelldar árásir á orkuinnviði halda áfram að magnast og valda gríðarlegri eyðileggingu. Fólk er skilið eftir í myrkri og kulda þegar það stendur frammi fyrir fjórða vetrinum í þessu allsherjarstríði. Samhliða þessu hafa árásir á járnbrautir rofið lífsnauðsynlegar birgðaleiðir og komið í veg fyrir brottflutning frá þeim svæðum sem hafa orðið verst úti í norður- og austurhluta Úkraínu.
Enginn staður er öruggur lengur. Mannfallið eykst og linnulausar árásir valda dauða og meiðslum meðal almennra borgara, þar á meðal kvenna og stúlkna. Þetta kemur allt fram í yfirlýsingu sem Sabine Freizer Gunes, fulltrúi UN Women í Úkraínu, sendi frá sér á dögunum.
Mannfall aukist um 40% frá árinu 2024
Árið 2025 hefur staða almennra borgara versnað til muna. Heildarfjöldi látinna hefur aukist um 40% miðað við árið 2024. Frá því í febrúar 2022 hafa að minnsta kosti 4.403 konur og 313 stúlkur verið drepnar. En á bak við þessar tölur leynast sögur raunverulegra kvenna og stúlkna í landinu, líkt og kom fram í máli Sabine.
,,Mig langar til að deila með ykkur nokkrum sögum frá Zaporizhzhia, borg með nærri einni milljón íbúum, sem búa innan við 30 kílómetra frá víglínunni,“ sagði Sabine.
,,Á dögunum skipulagði UN Women, í samráði við kvenréttindasamtökin Ukrprostir, samráðsfundi í borginni með þremur mismunandi hópum kvenna. Í þessum hópum voru konur sem hafa gegnt herþjónustu, kvenfrumkvöðlar og leiðtogar kvenréttindasamtaka. Sögur þeirra voru afar áhrifamiklar og sýndu fram á að í allri stefnumótun og fjármögnun þarf að taka mið af sérstökum þörfum kvenna þegar kemur að mannúðaraðstoð og endurreisn,“ hélt Sabine áfram.
,,Konurnar í hópnum falla hvorki auðveldlega undir skilgreininguna fórnarlömb né hetjur. Sem dæmi má nefna konu að nafni Olha Bielous. Hún er á sextugsaldri, hefur gegnt herþjónustu, er ekkja fallins hermanns og móðir manns sem nú gegnir herþjónustu. Þarfir hennar eru miklar, sérstaklega hvað varðar geðheilsu, en þrátt fyrir það heldur hún áfram að berjast fyrir breytingum. Hún hefur sérstaklega einbeitt sér að því að standa vörð um réttindi kvenna sem hafa gegnt herþjónustu í Zaporizhzhia og víðar.
Önnur kona sem ég hitti er Natalia Voronovs’ka frá Mariupol, sem er á flótta innanlands. Hún rak áður fyrirtæki sem sérhæfði sig í innanhússhönnun en það hefur verið lagt í rúst í stríðinu. Nú býr hún í Zaporizhzhia og hefur stofnað eigið fyrirtæki sem framleiðir ilmkerti. Hún lítur á kertin sem tákn um hlýju, frið og ljós innan um árásirnar sem nú eiga sér stað í Zaporizhzhia. Þessar tvær konur, líkt og margar aðrar konur sem búa á stöðum eins og Zaporizhzhia, þurfa annars vegar brýna mannúðaraðstoð en eru hins vegar þegar byrjaðar að taka virkan þátt í endurreisnarstarfinu,“ sagði Sabine.
Börn í Úkraínu standa frammi fyrir því að vera svipt menntun vegna stríðsins
,,Þann 11. október var haldið upp á alþjóðlegan dag stúlkubarnsins. Samt stendur heil kynslóð barna í Úkraínu frammi fyrir því að vera svipt menntun. Um 4,6 milljónir barna glíma enn við alvarlegar hindranir í námi. Þrátt fyrir að verið sé að vinna að því í Úkraínu að byggja neðanjarðarskóla, eins og til dæmis í Zaporizhzhia, er það ekki nóg til þess að mæta þörfinni,“ sagði Sabine.
Hún hélt áfram: ,,Glæpirnir sem eru framdir í Úkraínu skilja eftir sig djúp og varanleg sár, ekki aðeins hjá þeim sem lifa af heldur einnig hjá fjölskyldum þeirra og samfélögum.“
Sabine nefndi að á dögunum var þess jafnframt minnst að 25 ár eru liðin frá því að ályktun 1325 um Konur, frið og öryggi var undirrituð. Ályktunin lagði áherslu á að varanlegur friður væri óhugsandi án kynjajafnréttis. Á fundi öryggisráðsins lagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, áherslu á mikilvægi verndar og ábyrgðar í átökum: ,,Við þurfum vernd. Við verðum að tryggja algjört umburðarleysi gagnvart ofbeldi gegn konum, friðarsinnum og mannréttindafrömuðum. Við verðum einnig að tryggja að þeir sem bera ábyrgð á hvers kyns kynbundnu ofbeldi, þar á meðal kynferðisofbeldi í tengslum við átök, verði dregnir til ábyrgðar.”
Konur gegna lykilhlutverki í endurreisnarstarfi
Í Úkraínu halda konur áfram að þjást vegna árásanna, en gegna á sama tíma lykilhlutverki í mannúðar- og endurreisnarstarfi. Þær standa þó frammi fyrir gífurlegum hindrunum, einkum þegar kemur að fjármögnun.
,,Minna en 1 prósent allrar aðstoðar til enduruppbyggingar í Úkraínu er beint að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. Samt sem áður sýnir reynslan frá borgum eins og Zaporizhzhia, þar sem starfandi borgarstjóri er kona, að konur eru að skipuleggja sig og taka forystu. Þær þurfa hins vegar mun meiri stuðning til að geta haldið áfram því mikilvæga starfi sem þær sinna.
Nú er kominn tími til að standa þétt með konum og stúlkum í Úkraínu. Saman getum við tryggt að þær komist í gegnum þetta stríð með styrk og þrautseigju og komi fram sem valdefldir leiðtogar sem geta mótað kynjamiðaða endurreisn Úkraínu og framtíð sem byggir á jafnrétti og réttlæti,“ sagði Sabine að lokum.
Lestu frásagnir kvenna í Úkraínu hér.
Þú getur lagt þitt af mörkum
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Ljósberi) UN Women á Íslandi styður þú við verkefni UN Women um allan heim, þar á meðal í Súdan.
Meginhlutverk UN Women á heimsvísu er:
- Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum
- Kvenmiðuð neyðaraðstoð
- Útrýming fátæktar
- Að efla pólitíska þátttöku kvenna
- Konur, friður og öryggi
Þú getur einnig lagt til frjáls framlög (og sett „Úkraína“ í tilvísun):
Í gegnum AUR í númerið 123-839-0700
Leggðu til frjáls framlög í banka:
Reikningsnúmer: 0537–26–55505
Kennitala: 551090-2489

