Mikið líf og fjör ríkti í Stúdíó Sýrlandi yfir helgina er gjörningahópurinn WEIRD GIRLS PROJECT undir leiðstjórn Kitty Von-Sometime kom saman í heljarinnar myndatöku.
Tilkoma myndatökunnar er sameining UNIFEM, þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna við þrjár aðrar stofnannir innan Sþ. Þessi nýja stofnun hefur hlotið nafnið UN Women.
„Óhætt er að segja að þessa nýja stofnun sé tímamótaviðburður innan Sameinuðu þjóðanna og fyrir konur út um heim allan„ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
„Þess vegna vegna leituðum við til Kitty Von-Sometime og WEIRD GIRLS PROJECT. Okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi til þess að kynna Íslendingum fyrir þessari merku breytingu og það fyrsta sem okkur datt í hug var samvinna með Kitty og skrýtnu stelpunum. Við finnum mikinn samhljóm með þeim skilaboðum sem lesa má úr verkum WEIRD GIRLS PROJECT og það sem UN Women stendur fyrir; að veita konum aukinn kraft og að rödd kvenna fái að hljóma hærra en nokkru sinni fyrr“ segir Inga Dóra ennfremur.
Myndin verður afhjúpuð 3. mars næstkomandi á áberandi stað í miðbænum. „Við hlökkum afar mikið til að sjá útkomuna og vonumst til þess að Íslendingar geri sér ferð niður í bæ að skoða myndina og sýna samstöðu með „systrum“ sínum víðsvegar um heiminn.“