Skilaboð til hlaupara UN Women

Heim / Fréttir / Skilaboð til hlaupara UN Women

1150409 10151541758175938 784162208 n

Nú fer að líða að árlegu Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og skráningar hafnar á Hlaupastyrkur.is.

Líkt og fyrri ár er fjöldi hlaupara að safna áheitum fyrir góð málefni og undanfarin ár hefur stuðningsfólk UN Women ekki látið sitt eftir liggja.

Nú þegar hefur fjöldi öflugra hlaupara skráð sig til leiks í nafni UN Women og eru áheit farin að streyma inn. En betur má ef duga skal því við setjum markið hátt að þessu sinni og stefnum á að slá öll met fyrri ára.

Við köllum því til Fiðrildafylkingu UN Women og heitum á ykkur að láta slag standa og hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í ár í nafni samtakana, ykkur til heilsubótar og til stuðnings konum og stúlkum út um allan heim sem búa við skert lífsgæði og tækifæri. Tækifærið er núna, ekki láta það renna þér úr greipum. Láttu að þér kveða og stattu með systrum þínum út um heim allan. Skráning í hlaupið fer fram hér: http://marathon.is/reykjavikurmaraton og til að hlaupa í nafni UN Women getur þú skráð þig hér: http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/taka-thatt/

Klapplið UN Women verður svo að sjálfsögðu á staðnum í hlaupinu sjálfu til að styðja þétt við bak síns fólks. Við verðum á sama stað og í fyrra, út á Granda við JL húsið.

Related Posts