Skemmtilegt samstarf við Reykjavík Shorts & docs

Heim / Fréttir / Skemmtilegt samstarf við Reykjavík Shorts & docs

rsdflogoUN Women á Íslandi vill þakka aðstandendum kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík Shorts & docs kærlega fyrir skemmtilegt samstarf.

Hátíðin veitir einstakt tækifæri til að skyggnast inn í líf fólks hvaðanæva úr heiminum en heimildarmyndir eru lifandi og skemmtilegur miðill til að sýna fjölbreytileikann og kynna okkur fyrir framandi aðstæðum.

Hátíðinni lauk á miðvikudaginn með glæsilegu lokahófi og vilja samtökin þakka aðstandendum hátíðarinnar fyrir að veita UN Women á Íslandi tækifæri á því að koma málefnum samtakanna á framfæri.

Opnunarmynd hátíðarinnar, Town of Runners, og móttaka sem haldin var fyrir sýningu hennar var í boði landsnefndar UN Women og W.O.M.EN, Samtaka kvenna af erlendum uppruna í samvinnu við Ölgerðina.

Þá stóð UN Women á Íslandi einnig fyrir pallborðsumræðum eftir sýningu heimildarmyndarinnar Sarabah. Myndin fjallar um ferðalag hip hop-söngkonunnar Sister Fa aftur til heimalands síns, Senegal, þar sem hún vill vekja samfélagið sitt til umhugsunar um umskurð á kynfærum kvenna og afleiðingar þess á líf og heilsu kynsystra sinna.

Í pallborði sátu Inga Hrönn Häsler sem hefur lokið B.A. gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands en lokaritgerð hennar fjallar einmitt um umskurð á kynfærum kvenna, Ebba Margrét Magnúsdóttir sérfræðingur á kvennadeild Landspítalans og Maya Jakubowicz fulltrúi Women Make Movies.  Samtökunum fannst við hæfi að vekja fólk einnig til umhugsunar um fegrunaraðgerðir á kynfærum kvenna sem hafa færst í vöxt á Vesturlöndum hin síðari ár þar á meðal á Íslandi. Er óhætt að segja að umræðurnar í kjölfar myndarinnar hafi verið líflegar.

Takk enn og aftur fyrir okkur!

http://www.youtube.com/watch?v=8RRu6ULvBeg

Related Posts