UN Women á Íslandi stendur fyrir stóru fjáröflunarátaki, Fiðrildvika, sem hefst mánudaginn 12. september og stendur til 18. september.
Markmið átaksins er að vekja landsmenn til vitundar um stöðu kvenna í fátæktustu samfélögum heims og á stríðshrjáðum svæðum og fá sem flesta til að styrkja starfið og taka þannig þátt í að bæta líf þessara kvenna.
Í tilefni Fiðrildavikunnar verður haldin setningarhátíð við fiðrildatré UN Women á Austurvelli þann 12. september kl 13:00. Nemendur Vesturbæjarskóla hafa unnið hörðum höndum undanfarna daga við að hanna og búa til fiðrildaskreytingar sem hengdar verða upp í trén við Austurvöll til að vekja athygli á átakinu.
Dagskrá setningarhátíðarinnar:
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ötul talskona UN Women setur fiðrildavikuna.
- Nemendur Vesturbæjarskóla sýna fiðrildaverk og syngja fyrir konur heims.
- Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi fer með nokkur orð.
Það er engin tilviljun að þema fjáröflunarvikunnar er fiðrildið. Ætlunin er að hafa fiðrildaáhrif frá Íslandi því eitthvað lítið eins og vængjasláttur örsmárra fiðrilda getur haft áhrif á veðurkerfi hinum megin á hnettinum.
Íslendingar eru leiðandi þjóð í jafnréttismálum og er það því ábyrgð okkar að standa með systrum okkar víða um heim. Það er trú UN Women að með því að efla konur og auka réttindi þeirra og tækifæri sé verið að vinna samfélaginu öllu til heilla.
Mættu á Austurvöll mánudaginn 12. September klukkan 13 og sýndu samstöðu konum í fátækustu löndum heims.
Saman getum við haft fiðrildaáhrif!