Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna beinir UN Women sjónum að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og þá sér í lagi því fimmta sem snýr að því að tryggja jafnrétti kynjanna.
Fimmta markmiðið hefur verið talið hið brýnasta þar sem ómögulegt er að ná hinum sextán án kynjajafnréttis. Til að ná markmiði UN Women um að koma á raunverulegu kynjajafnrétti fyrir árið 2030, verður að setja aukinn kraft í að ná fimmta markmiðinu.
Aðildarríkin beri ábyrgð
Mikilvægt er að beina sjónum að þeim skuldbindingum sem 91 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa sett sér til þess að ná raunverulegu kynjajafnrétti á næstu 14 árum. Fyrir tilstilli UN Women komu þjóðhöfðingjar saman í september á síðasta ári í höfuðstöðum SÞ og hétu því að beita sérhæfðum aðgerðum um hvernig binda megi enda á mismunun gegn konum og stúlkum. Skuldbindingarnar ná yfir stærstu hindranir sem konur mæta á lífsleiðinni, t.d. ofbeldi gegn konum, löggjafir sem mismuna konum og kynbundin launamunur. Skuldbindingar Íslands fela í sér meðal annars að útrýma kynbundnum launamun fyrir árið 2020, auka þátttöku karlmanna í umræðunni og í baráttunni fyrir auknu kynjajafnrétti.

Lesa má um skuldbindingar landanna hér.http://www.unwomen.org/en/news/stories/2015/9/press-release-global-leaders-meeting.
Þessar skuldbindingar eru annars vegar leið til að ýta undir ábyrgð aðildarríkjanna og hinsvegar þrýstiafl á þau.
UN Women stendur fyrir viðburðum í yfir 40 löndum og má þar á meðal nefna vináttuleik milli kvenna og karlaliðsins í hokkí í Tansaníu, hjólakeppni í Nýju Delí, tónlistar-og danshátíð í Palestínu svo dæmi séu nefnd.
Áhugasamir geta fylgst með umræðunni á samfélagsmiðlunum undir myllumerkjunum #IWD2016 og #Planet5050. Einnig verður hægt að fylgjast með merkilegum konum á Snapchat undir Live stories í tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn öll!

