
UN Women að störfum í Súdan. Hörð átök standa yfir í landinu.
Vopnuð átök hafa geisað í Súdan nánast stöðugt frá árinu 2003. Þann 15. apríl árið 2023 braust út ný hrina átaka á milli SAF og RSF, sem berjast um völd í landinu, og standa þau átök enn yfir. Í dag er staðan sú að Sameinuðu þjóðirnar telja krísuna til stærstu mannúðarkrísa heims.
Meira en 11 milljónir hafa neyðst til að flýja heimili sín í kjölfar átakanna. Vannæring er vaxandi vandamál í öllum héruðum Súdans, sérstaklega hjá barnshafandi konum og ungum börnum. Meiri hluti fólks á flótta er á vergangi innan Súdans en um 2,9 milljónir hafa flúið til nágrannaríkja, flest til Egyptalands. 54% þeirra sem eru á flótta innan Súdans eru konur og stúlkur.
Óttinn við ofbeldi og nauðganir var yfirþyrmandi
„Við eiginmaður minn vorum á flótta og á vergangi í tuttugu daga, eða allt þar til við komumst til foreldra minna í Omdurman-héraði. Ég var komin fjóra mánuði á leið og var farin að fá gríðarlega kviðverki. Þó að það væri lífshættulegt að yfirgefa húsið neyddumst við að leggja á flótta í annað sinn vegna átakanna. Ég grét mikið því við vissum hvorki hvert förinni væri heitið né hvernig við ættum að komast þangað. Óttinn við ofbeldi, nauðganir, rán og morð var yfirþyrmandi. Ég gat ekki sofið og á þremur dögum lokaði ég augunum í kannski sex klukkustundir samanlagt. Við lögðum aftur á flótta í von um að finna öryggi,“ segir 26 ára gömul kona sem flúði átökin ítrekað ásamt eiginmanni sínum.
„Flóttinn var flókinn því það var ekkert eldsneyti til og það litla eldsneyti sem var fáanlegt var selt á gríðarlega háu verði á svörtum markaði. Heppnin var þó með okkur og við gátum að endingu útvegað okkur far. Við ferðuðumst til Atbara og ég er nú í þeirri stöðu að vera flóttamaður í eigin landi. Ég vonast eftir því að fá almennilegan sálrænan stuðning því þessi reynsla hefur skaðað mig mikið. Ég þrái vernd fyrir mig og barn mitt. Ég vil líka geta tekið þátt í að koma á friði í landinu mínu. Ég vil vinna bug á þeirri krísu sem ríkir í heilbrigðismálum og styðja við fólk og börn á flótta. Ég vil að stríðinu ljúki strax. Ég vil frið og ég vil geta snúið aftur heim til mín.“
UN Women bregst við neyðinni í Súdan
Verkefni UN Women í Súdan hafa breyst með tilkomu stríðsins og miða þau flest að því að veita konum og stúlkum kvenmiðaða mannúðar- og neyðaraðstoð. Eitt af verkefnum UN Women í Súdan er að bera kennsl á konur og stúlkur í viðkvæmri stöðu, til dæmis barnshafandi konur og einstæðar mæður. Þetta er nauðsynlegt svo hægt sé að ábyrgjast að þær hljóti aðgang að mat og öðrum nauðsynjum. Þá vinnur UN Women í Súdan að því að efla konur með leiðtogahæfileika og þjálfa þær í samningaviðræðum svo þær geti tekið þátt í samræðum um frið, fjármagn og aðrar lausnir við uppbyggingu landsins að stríði loknu.
Þú getur stutt við starf UN Women í Súdan með kaupum á FO-húfunni 2024. Framleiðsla húfunnar er kostuð af Öryggismiðstöðinni, sem er bakhjarl FO-herferðarinnar í ár. Allur ágóði rennur því beint til verkefna UN Women í Súdan.

