Réttindi afganskra kvenna minni en dýra

Heim / Fréttir / Réttindi afganskra kvenna minni en dýra

Afganskar konur fá ekki að taka fullan þátt í samfélaginu lengur.

Afganskar konur hlutu kosningarrétt árið 1919 en búa í dag við lítil sem engin réttindi. Þetta var á meðal þess sem framsögufólk ræddi á fundi um réttindi afganskra kvenna sem haldinn var í Sameinuðu þjóðunum á mánudag.  

„Það er mikilvægara en nokkru sinni áður að afganskar konur fái að taka þátt í öllu er viðkemur framtíð Afganistans,“ sagði Asila Wardak frá Women‘s Forum on Afghanistan, samtökunum sem stóðu fyrir fundinum í samstarfi við stjórnvöld Írlands, Indónesíu, Sviss og Katar.  

Wardak lagði áherslu á að ekki verði hægt að byggja framtíð Afganistan með útilokun hálfrar þjóðarinnar. „Í stað þess að vera hliðsettar, verða afganskar konur að fá að vera hluti af lausninni.“ 

 

Sameinuðu þjóðirnar sýna samstöðu  

Women‘s Forum on Afghanistan berst fyrir því að afganskar konur séu hluti af öllum samtölum og ákvarðanatökum er varða framtíð Afganistans á alþjóðavettvangi. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, sótti fundinn og hét því að Sameinuðu þjóðirnar munu áfram kalla eftir því að mannréttindi afganskra kvenna séu virt og halda áfram að vera vettvangur þar sem raddir þeirra fái að hljóma.  

„Sameinuðu þjóðirnar munu aldrei líða það að kynbundin mismunun verði að eðlilegum hlut neins staðar í heiminum.“ 

 

Ósýnilegar konur 

Talibana-stjórnin hefur vegið að mannréttindum kvenna og stúlkna viðstöðulaust frá því þeir tóku völd árið 2021. Stjórnin hefur gefið út fleiri en 70 opinberar tilskipanir og fyrirmæli sem takmarka mannréttindi kvenna og stúlkna með einhverjum hætti, þ.m.t. bannað stúlkum að stunda framhaldsmenntun, bannað konum að vinna flest störf og meinað þeim að nota almenningsrými og -garða.  

Leikkonan Meryl Streep tók einnig til máls á fundinum og sýndi brot úr heimildarmyndinni The Sharp Edge of Peace, sem fjallar um einu konuna sem tók þátt í samningaviðræðum afganskra stjórnvalda og talibanastjórnarinnar í Doha árið 2020. Streep benti á í erindi sínu að afganskar konur búa við takmarkaðra frelsi en dýr.  

„Köttur getur sest út á tröppurnar fyrir framan húsið sitt og notið þess að finna sólina skína á andlit sitt. Hann gæti jafnvel tekið upp á því að elta íkorna inn í næsta almenningsgarð. Jafnvel íkorninn hefði meira frelsi en afganskar konur og stúlkur búa við í dag, því ólíkt íkornanum mega þær ekki fara inn í almenningsgarða. Fuglar mega syngja í Kabúl, en það mega stúlkur ekki lengur gera.“ 

Hægt er að hlusta á ræðu Streep hér: https://news.un.org/en/story/2024/09/1154721 

Related Posts
Scenes from the Rubkona IDP Camp in South Sudan (Photo: UN Women/James Ochweri)