Ráðstefna: Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld

Heim / Fréttir / Ráðstefna: Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld
FACEBOOK VEGGMYNDUN Women á Íslandi, Festa og Samtök atvinnulífsins bjóða til opinnar ráðstefnu þann 27. maí næstkomandi klukkan 9.00 (skráning hefst 8.10) um stöðu og þróun jafnréttismála á atvinnumarkaði í samstarfi við Jafnréttisstofu undir yfirskriftinni „Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld.“
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Reykjavík Hilton Nordica. Styrktaraðili ráðstefnunnar er Actavis á Íslandi.
Fjallað verður um mikilvægi þess að fyrirtæki setji jafnréttismál á oddinn út frá viðskiptalegum forsendum og samfélagsábyrgð. Rætt verður um mikilvægi þess að hafa blandaðar stjórnir og stjórnendur í fyrirtækjum bæði út frá jafnréttissjónarmiðum og af þeirri einföldu ástæðu að teknar eru betri ákvarðanir fyrirtækjum til heilla. Jafnframt verður rætt um Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact (WEP), stefnu og innleiðingu. Hluti af aðgangseyri ráðstefnunnar rennur til UN Women í þágu valdeflingar kvenna á atvinnumarkaði.
Gena Lovett, Global Chief Diversity Officer hjá Alcoa, Kristin Hetle, Director hjá UN Women, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi ásamt Sigurborgu Arnardóttur formanni Festu og Þorsteini Viglundssyni framkvæmdastjóra SA munu flytja erindi á ráðstefnunni.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar-og viðskiptaráðherra mun heiðra eitt íslenskt fyrirtæki sem hefur haft jafnrétti að leiðarljósi í sínu starfi  með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála og hvetja þannig önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama.
Auk þess munu þrjú íslensk fyrirtæki og eitt alþjóðlegt fyrirtæki skrifa undir Jafnréttissáttmála UN Women og Global Compact.

Ráðstefnan er opin öllum.  Hægt er að skrá sig hér

Dagskrá ráðstefnunnar
8.10-8.30 Skráning og kaffi
8.30-8.35 Þóra Arnórsdóttir, fjölmiðlakona og stýrir fundi.
8.40-9.00 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA
9.00-9.20 Gena Lovett, Global Chief Diversity Officer hjá Alcoa
9.20-9.30 Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur Jafnréttisstofu
9.30-9.50 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi
9.50-10.20 Rep. Kristen Hetle, Director,UN Women NY
10.20-10.40 Sigurborg Arnarsdóttir, formaður Festu.
10.40-11.20 Pallborðsumræður í kjölfar erinda
11.20-11.40 Atvinnuvegaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir afhendir í fyrsta sinn Hvatningarverðlaun í jafnréttismálum
11.40-12.00 Fyrirtæki skrifa undir Jafnréttissáttmálann
12.00-13.00 Hádegishlé: Hádegisverður
13.00-16.00 Vinnustofur UN Women, Festu og SA í samstarfi við Jafnréttisstofu og fleiri. Stefnumótun í jafnréttismálum, staðlar – lög- og viðmið, markmið, innleiðing, skýrslugjöf, endurmat og árangur.

Nánari um vinnustofur

Vinnustofur: Farið verður í gegnum allt ferlið í tengslum við mótun jafnréttisstefnu, innleiðingu, mælingar/mælikvarða, skýrslugjöf, árangursmat og endurmat.

13.00-14.00

Vinnustofa 1: Stefnumótun og jafnréttissáttmálinn
UN Women á Íslandi

• Jafnréttisstefna – byggð á stöðlum (WEP – 7 viðmið)
• Valdefling kvenna á vinnustöðum, atvinnumarkaði og í samfélaginu
• Fulltrúar Actavis veita ráðgjöf
Stjórnendur vinnustofu: Soffía Sigurgeirsdóttir og Edda Jónsdóttir

Vinnustofa 2: Jafnrétti og samfélagsábyrgð
SA og Festa

• Jafnrétti kynjanna – samfélagsábyrgð
• Global Compact
• Aukinn hagvöxtur o.fl.

Stjórnendur vinnustofu: Ketill B. Magnússon og Hörður Vilberg

14.00-15.00

Vinnustofa 3: Jafnréttislög og jafnréttisáætlanir
Jafnréttisstofa
• Skyldur atvinnurekenda
• Réttindi starfsfólks
• Aðgerðir til að tryggja réttindi samkvæmt jafnréttislögum
• Hagnýt dæmi
• Umræður og hópavinna
Stjórnendur vinnustofu: Ingibjörg Elíasdóttir og Tryggvi Hallgrímsson

 

Vinnustofa 4:

Innleiðing jafnréttisstefnu í fyrirtækjum
Flóra – Félag mannauðsstjóra
• Innleiðing stefnunnar þvert á fyrirtæki (top down – buttom up), vinnuphópar, deildir, svið o.fl.
• Þátttaka starfsmanna í innleiðingunni (karlmanna, stjórnenda, stjórnarmanna o.fl.)
• Tölfræði – mælikvarðar – kerfi (mannauðs-, fræðslukerfi)
• Stjórnendamat
Stjórnandi vinnustofu: Erna Arnardóttir, mannauðsstjóri Deloitte

15.00-16.00

Vinnustofa 5: Samantekt

• Samantekt
• Skýrslugjöf – m.a. Global Reporting Initiative
• Árangur – endurmat!
• Umræður

Stjórnendur vinnustofu: UN Women á Íslandi, Festa og SA

 

Related Posts