Ráðist á vöruflutningabíla Sameinuðu þjóðanna

Heim / Fréttir / Ráðist á vöruflutningabíla Sameinuðu þjóðanna
Frá forvarnarþjálfun vegna kynbundins ofbeldis (Gender Based Violence) sem haldin er af UN Women og samstarfsaðilum í Blue Nile, Súdan. 2. febrúar 2023. Mynd: UNEP Súdan

Mikil neyð ríkir í Súdan.

Óþekktir vígahópar réðust á sunnudag á vöruflutningabíla Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Súdan. Bílfarmarnir innihéldu matar- og neyðaraðstoð ætluðum óbreyttum borgurum í Darfur-héraði. Clementine Nkweta-Salami, æðsti embættismaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum í Súdan, lýsir verknaðinum sem óhæfuverki.

Matvælaáætlunin hefur biðlað til stjórnvalda í Súdan um að tryggja að matvæla- og neyðaraðstoð fái að berast óhindrað til þeirra er þurfa mest á henni að halda.

Sérlega slæm staða

Um það bil 26 milljónir einstaklinga búa við gríðarlegt hungur og margar milljónir hafa verið þvingaðar á flótta vegna átakanna. Um 1,9 milljónir hafa flúið til nærliggjandi landa. Staðan er sérstaklega slæm í Darfúr-héraði, þar sem harðnandi átök á milli SAF (Sudanese Armed Forces) og RSF (Rapid Support Forces) eiga sér stað.

 

Skortur á fjármagni hamlar einnig aðstoð

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna halda áfram að dreifa mannúðar- og neyðaraðstoð til fólks í Súdan, þrátt fyrir erfiðar aðstæður og ótryggt ástand.

Erfiðlega hefur þó gengið að tryggja fjármagn til neyðaraðstoðar í Súdan. Sameinuðu þjóðirnar áætla að 2,7 milljarða Bandaríkjadala þurfi til að sinna neyðarstarfi, en aðeins um 16,6% þess fjármagns hefur fengist.

UN Women er ein þeirra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem er starfandi í Súdan. Verkefni stofnunarinnar hafa breyst með tilkomu stríðsins og miðast nú að mestu leyti að því að veita mannúðar- og neyðaraðstoð. Meðal þess sem UN Women í Súdan gerir er að:

  • Veita þolendum ofbeldis aðgengi að þjónustu í samstarfi við súdönsk félagasamtök
  • Vinna að því að koma upp þjónustumiðstöðvum fyrir konur og stúlkur á flótta
  • Skrásetja og afla gagna um kynbundið ofbeldi svo hægt sé að sækja málin til saka á síðari tímum
  • Bera kennsl á konur og stúlkur í viðkvæmri stöðu svo hægt sé að ábyrgjast að þær hljóti aðgang að mat og nauðsynjum

FO-herferð UN Women á Íslandi árið 2024 verður til styrktar Súdan, sem hefur stundum verið kallað „gleymda stríðið“. Vopnuð átök hafa geisað í ríkinu nánast linnulaust frá árinu 2003. Þann 15. apríl árið 2023 brutust út mjög hörð átök á milli SAF og RSF, sem berjast um völd í landinu, og standa þau átök enn yfir.

Related Posts