
Stella Samúelsdóttir tekur á móti styrknum frá Moniku Abendroth
Tónlistarkonan Monika Abendroth færði á föstudaginn UN Women á Íslandi ágóða afmælissöfnunar sem hún efndi til í tilefni 80 ára afmælis síns.
Alls söfnuðust 210 þúsund krónur sem renna í neyðarsöfnun UN Women á Íslandi fyrir konur og stúlkur á Gaza og í Líbanon.
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, veitti peningunum móttöku. Hún þakkaði Moniku fyrir ómetanlegan stuðning við konur og stúlkur á átakasvæðum.
Monika veitti okkur góðfúslegt leyfi fyrir stuttu viðtali við þetta tilefni. Hún segist lengi hafa kosið að leggja góðu málefni lið frekar en að þiggja gjafir á afmæli sínu. Það sé ekki aðeins jákvæður stuðningur við félagasamtök heldur komist gestir einnig hjá því að eyða tíma við að leita að afmælisgjöfum. Það hagnist því allir á þessu fyrirkomulagi.
Stuðningur við konur er stuðningur við samfélagið
„Mér finnst þetta sérstaklega mikilvægt á tímum sem þessum. Þegar manni finnst mannúðin á undanhaldi, þá er mikilvægt að leggja eitthvað til sem vegur upp á móti, eitthvað jákvætt. Ástæðan fyrir því að ég kaus að styrkja UN Women á Íslandi var sú að með því að styðja við konur á átakasvæðum, styður maður einnig við börn þeirra og samfélagið í heild,“ útskýrir Monika.
Meðal þeirra verkefna sem UN Women hefur haldið úti á Gaza og Líbanon er dreifing sæmdarsetta og matvæla. Stofnunin veitir beinan fjárstuðning til kvenna sem eru einu fyrirvinnur fjölskyldunnar og styður við rekstur kvenrekinna félagasamtaka, sem mörg veita nú neyðaraðstoð og áfallahjálp.
UN Women á Íslandi þakkar Moniku kærlega fyrir þennan óvænta en gríðarlega mikilvæga stuðning.

