
Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram mánudaginn 25. nóvember kl. 17:00, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. UN Women á Íslandi (áður UNIFEM) hefur haldið Ljósagönguna á þessum degi í um 20 ár til að minna á daginn og þá staðreynd að kynbundið ofbeldi og kvennamorð eru ennþá samfélagsmein um allan heim.
Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona, leiðir gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi.
Harpa tónlistarhús, Hallgrímskirkja og Háskóli Íslands verða sem fyrr lýst upp í appelsínugulum lit í tilefni dagsins, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.
Sjá Facebook viðburð fyrir Ljósagönguna 2025.
Hrottalegasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis

16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember á ári hverju, á á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, og lýkur 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadeginum. Í átakinu í ár er lögð áhersla á kvennamorð (e. femicide), sem eru hrottalegasta og grófasta birtingarmynd ofbeldis gegn konum og stúlkum og bein afleiðing kynjamismununar, kynbundins ofbeldis og úreltra hugmynda um kynjahlutverk. Algengustu dæmi kvennamorða í vestrænum samfélögum eru morð í nánum samböndum. Í fyrra voru að minnsta kosti 51.100 konur myrtar af maka eða nákomnum ættingja, ein kona á tíu mínútna fresti. Yfirskrift átaksins í ár er því „Every 10 Minutes, a woman is killed. #NoExcuse. UNiTE to End Violence against Women.“
Við hvetjum öll til að mæta og sýna samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.

