Skapið fyrir Sameinuðu þjóðirnar – Segið nei við ofbeldi gegn konum:
Auglýsingasamkeppni sem miðar að jafnrétti kynjanna og því að uppræta hvers kyns ofbeldi gegn konum og stúlkum var ýtt úr vör í Brussel 8. mars, á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Að keppninni stendur UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu í samvinnu við Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Women) og upplýsingaskrifstofur SÞ um alla Evrópu.
Samkeppnin sem nær til allra Evrópulanda er hluti af UNiTE, herferð Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til höfuðs ofbeldi gegn konum. Í keppninni eru Evrópubúar, jafnt atvinumenn sem áhugamenn, hvattir til að búa til auglýsingu sem segir “Nei við ofbeldi gegn konum.”
Fyrstu verðlaun eru 5000€ og verður sigurvegarinn valinn af dómnefnd skipaðri sérfræðingum á borð við Jacques Séguéla, varaforseta auglýsingarisans Havas og Stefán Einarsson, hönnunarstjóra Hvíta hússins sem sigraði í sams konar keppni Sameinuðu þjóðanna í fyrra.
Fjölmörg dagblöð í Evrópu leggja keppninni lið og má nefna Le Monde í Frakklandi, the Guardian í Bretlandi og Fréttablaðið á Íslandi.
“Hver og einn verður að axla ábyrgð til að stöðva ofbeldi,“ segir Michelle Bachelet, forstjóri nýrrar Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UN Women “ Ríkisstjórnir, einkafyrirtæki, almannasamtök, samfélög og einstaklingar verða að leggja sitt af mörkum. Karlar og strákar verða að vera virkir í því að efla virðingu fyrir konum og skilyrðislausa útilokun ofbeldis.“
“Það var okkur mikil hvatning hversu margir Evrópubúar tóku kalli okkar á síðasta ári þegar við héldum sams konar samkeppni um fátækt í heiminum (WeCanEndPoverty). Þema keppninnar í ár er því miður vágestur sem herjar á hvert einasta land,” segir Afsané Bassir-Pour, forstjóri UNRIC.
Þátttökurétt í keppninni hafa allir íbúar hinna 48 aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í Evrópu. Samkeppnin hefst 8. mars og lýkur á miðnætti 31. Maí 2011. Sigurvegarinn verður tilkynntur 25. nóvember á Alþjóðlegum baráttudegi til upprætingar ofbeldis gegn konum. Sjá nánari upplýsingar á www.create4theun.eu