
Vilborg Anna Garðarsdóttir
Vilborg Anna Garðarsdóttir tekur við starfi fjáröflunarstýru samtakanna og ber ábyrgð á einstaklingsmiðaðri fjáröflun UN Women á Íslandi, samskiptum við mánaðarlega styrktaraðila ásamt því að leiða starf fjáröflunarhóps samtakanna.
Vilborg er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst. Vilborg hefur unnið lengst af í fjármálum og var framkvæmdastjóri fjármálasviðs í átta ár hjá fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Vera Líndal Guðnadóttir
Vera Líndal Guðnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í samfélagsmiðlun hjá UN Women á Íslandi og ber ábyrgð á stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum samtakanna.
Vera er með BA gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og diplómagráðu fráMyndlistaskólanum í Reykjavík. Síðastliðin ár hefur Vera starfað við verkefna- og viðburðastýringu, innri markaðssetningu og samfélagsmiðla hjá Símanum, hún var einnig lengi vel ein af skipuleggjendum Druslugöngunnar.

Áslaug Ármannsdóttir
Áslaug Ármannsdóttir er rekstrarstýra samtakanna og ber ábyrgð á skrifstofurekstri og starfsmannahaldi, verkefnastjórnun, og fyrirtækjasamstarfi.
Áslaug er með BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur lokið námi í markþjálfun frá Coach U og teymisþjálfun frá Team Coaching Studio. Síðustu ár hefur Áslaug starfað við verkefnastýringu, mark- og teymisþjálfun.

