Nemendur láta gott af sér leiða

Heim / Fréttir / Nemendur láta gott af sér leiða

Leikverkið Einn á móti þrem verður sýnt nú í lok nóvember í Urðarbrunni,  hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Verkið er lokaverkefni áfanga um samsköpunaraðferðir á nýstofnaðri leiklistarbraut og hafa nemendur verið að kanna breiddir og víddir aðferðarinnar í leiklist.llLeikhpurinn

Verkið varpar fram áleitnum spurningum um þarfir og kröfur nútímamannsins á Íslandi. Einnig spyr leikhópurinn hver staða Íslands og Íslendinga sé í alþjóðlegu samhengi. Yfir hverju erum við að kvarta? Er í rauninni einhver munur á okkur og fólki sem býr langt í burtu?

Heimspekilegt verk með samviskuspurningar sem á erindi við alla Vesturlandabúa.

Aðgangseyrir að sýningunni er kr 500.- til 1000.- og er það undir áhorfendum sjálfum komið hvaða góða málefni þeir styrkja með þeim pening. Til að mynda er hægt að styrkja UN Women með framlögum.

Sýningar eru eftirfarandi:

Fimmtudagurinn 24. nóvember kl. 18:00

Mánudagurinn 28. nóvember kl. 20:30

Þriðjudagurinn 29. nóvember kl. 12:00

Ekki þarf að panta miða, heldur mæta fyrir framan Urðarbrunn, hátíðarsal FG.

Nemendur áfangans og leikarar í verkinu eru: Alexandra Jóhanna Bjarnadóttir, Birna Rún Eiríksdóttir, Edda Margrét Erlendsdóttir, Guðlaugur Kjartan Þorgeirsson, Hans Alexander Hansen, Haraldur Axel Haraldsson, Lára Jóhanna Magnúsdóttir, María Thelma Smáradóttir, Ómar Páll Sigurbjartsson, Svana María Friðriksdóttir, Úlfar Logason og Vigdís Ósk Howser Harðardóttir. Kennari: Bjarni Snæbjörnsson

UN Women á Íslandi hvetur að sjálfsögðu alla til þess að mæta á þessa flottu sýningu og láta gott af sér leiða

Related Posts