Í dag kveðjum við Margréti Einarsdóttur sem fyrir rúmum þrjátíu árum var ein af upphafskonum UNIFEM á Íslandi (nú UN Women á Íslandi), þar sem hún ásamt fleiri kjarnakonum stofnuðu landsnefnd okkar á Íslandi.
Margrét starfaði í stjórn félagsins, sem formaður þess, og sem framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi á árunum 1997-1999. Undir stjórn hennar tókst að koma félaginu á fjárlög árið 1998. Áhrif þessara kjarnakvenna á utanríkisstefnu Íslands í jafnréttismálum og þá sérstaklega málefni kvenna í þróunarlöndum eru ómetanleg. Margrét helgaði líf sitt baráttunni fyrir bættum heimi og starfaði lengst af fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Hún starfaði til fjölda ára á vettvangi í Afríku, þar sem hún lagði mikla áherslu á jafnréttis- og heilbrigðismál og þá sérstaklega bætt réttindi kvenna og stúlkna.
Í dag störfum við starfskonur UN Women stoltar á þeim vettvangi sem Margrét og fleiri kjarnakonur lögðu grunninn að og þökkum við Margréti fyrir allt hennar óeigingjarna og mikilvæga starf í þágu kvenna og stúlkna.
Innilegar samúðarkveðjur sendum við fjölskyldu og vinum Margrétar.

