Mikilvægt að styða fjárhagslega við félagasamtök í Palestínu

Heim / Fréttir / Mikilvægt að styða fjárhagslega við félagasamtök í Palestínu
© UNICEF/Eyad El Baba Girls affected by the ongoing conflict in Gaza receive a care and protection package distributed by UNICEF.

Stúlkur á Gaza fá sæmdarsett. UNICEF/Eyad El Baba

Kvenrekin félagasamtök í Palestínu halda starfi sínu áfram þrátt fyrir fordæmalausar aðstæður. Flest þessara félagasamtaka, eða um 88% þeirra, hafa aðlagað starf sitt að breyttum aðstæðum og leggja áherslu á að koma neyðaraðstoð á borð við hreinlætisvörur, matvæli, fjárhagsaðstoð og sálrænni aðstoð til kvenna og stúlkna.

Í nýrri skýrslu UN Women um stöðu kvenrekinna félagasamtaka í Palestínu kemur í ljós að um 60% þeirra eru enn að mestu fullmönnuð, þökk sé sjálfboðaliðum, og geta þannig veitt lífsnauðsynlega þjónustu á neyðartímum. 89% þeirra félagasamtaka sem fjallað er um í skýrslu UN Women segja skrifstofur sínar hafa orðið fyrir skemmdum í árásum Ísraelshers.  35% hafa misst húsnæði sitt í árásum en hafa fundið leiðir til að halda starfsemi sinni áfram.

Mikilvæg fyrir framtíð kvenna og stúlkna

Um 25 félagasamtök mynda mikilvægt þjónustu- og tengslanet sem UN Women reiðir sig á til að nálgast konur og stúlkur í Palestínu með neyðaraðstoð. Þessi þjónusta er gríðarlega mikilvæg, einkum og sér á Gaza, þar sem 80% kvenna reiða sig alfarið á matargjafir fyrir sig og fjölskyldur sínar. 83,5% kvenna segja matargjafirnar þó ekki fullnægja grunnþörfum fjölskyldunnar.

Þrátt fyrir mikilvægi kvenrekinna félagasamtaka á þessum fordæmalausu tímum, eiga 88% þeirra í miklum fjárhagsvandræðum, sem takmarkar getu þeirra til að bregðast við neyðinni. Það er áríðandi að þessi félagasamtök hljóti áframhaldandi stuðning frá stofnunum á borð við UN Women svo þau geti áfram veitt mikilvæga þjónustu.

„Starf kvenrekinna félagasamtaka á Gaza og Vesturbakkanum er nauðsynlegt ef tryggja á afkomu kvenna og stúlkna, viðhalda vonarglætu þeirra, reisn og möguleikann á bjartari framtíð. Það er nauðsynlegt að fjárfesta í þessum félagasamtökum ef við ætlum að halda á lofti því markmiði að veita öllum neyðaraðstoð, líka þeim sem eiga það helst til að gleymast á tímum átaka,“ sagði framkvæmdastýra UN Women, Sima Bahous.

Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hér.

Related Posts