Föstudaginn 16. september kl. 14.00-16.00 standa UN Women á Íslandi, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum og Alþjóðlegur jafnréttisskóli fyrir málþinginu „War Rapes and Peace-Building in Bosnia and Herzegovina”.
Málþingið verður haldið á Háskólatorgi í stofu 105 og fer fram á ensku.
Að því tilefni hefur Landsnefnd UN Women á Íslandi boðið þeim Dr. Zilku Siljak og Sabihu Husic frá Bosníu og Hersegóvínu til landsins. Báðar hafa notið góðs af stuðningi UN Women og stofnað kvennasamtök í heimalandi sínu.
Á málþinginu er sjónum sérstaklega beint að stöðu mála í Bosníu og Hersegóvínu og kvennasamtökum sem hafa, í samstarfi við trúfélög, unnið í þágu friðar- og sáttaferla í landinu. Það starf hefur meðal annars leitt til stofnunar nýs námskeiðs á sviði kynja- og trúarbragðafræða við Sarajevo-háskóla. Einnig verður greint frá störfum frjálsu félagasamtakanna „Medica“ Zenica sem vinna með konum og stúlkum sem hafa lifað af stríðsnauðganir.
Dagskrá
Fundarstjórn: Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra Landsnefndar UN Women á Íslandi
Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur og sjálfstætt starfandi fræðimaður í Reykjavíkur Akademíunni.
„No vengeance, no violence, clean it and keep it clean“. An overview of the meaning and shortcomings of peace-building from a gendered perspective
Dr. Zilka Spahic-Siljak, yfirmaður MA-náms við Háskólann í Sarajevó og framkvæmdastjóri TPO samtakana í Sarajevó
Negotiating Power Relations: Peace-building and reconciliation between academia and civil society organizations in Bosnia and Herzegovina
Ms. Sabiha Haskic-Husić, M.Sc. og forstöðukona og sálfræðingur hjá “Medica” Zenica
Working with women survivors of war rape, trauma and other types of violence
Að fyrirlestrum loknum fara fram pallborðsumræður.