Líbanon væri allt annað ríki ef konur væru í stjórnunarstöðum

Heim / Fréttir / Líbanon væri allt annað ríki ef konur væru í stjórnunarstöðum

„Efnahagsleg uppbygging og endurreisn lítilla kvenrekinna fyrirtækja er mikilvægasta verkefni okkar núna,“ segir Caroline Fattal, frumkvöðull frá Líbanon. UN Women og Fattal hafa í sameiningu stutt lítil kvenrekin fyrirtæki við að ná sér aftur á strik eftir sprenginguna í Beirút í fyrra.

Beirút, Líbanon, sprengingGríðarlega öflug sprenging varð á hafnarsvæðinu í Beirút, höfuðborg Líbanon, þann 4. ágúst 2020. Mikið magn af ammóníum-nítrati, sem geymt var við ófullnægjandi aðstæður í vöruskemmu við höfnina, orsakaði sprenginguna sem olli stórkostlegu tjóni á hafnarsvæðinu og nærliggjandi hverfum borgarinnar. Um 200 einstaklingar létu lífið og hundruð þúsunda misstu heimili sín. Alþjóðabankinn áætlar að kostnaður við hreinsistarf og endurbyggingu nemi um 1.100 milljörðum króna.

Nú þegar ár er liðið frá sprengingunni er landið enn að glíma við pólitískan óstöðugleika, djúpa efnahagskreppu, COVID-19 og atvinnuleysi. Líkt og Fattal segir, er gríðarlega mikilvægt að styðja við efnahagslega uppbyggingu landsins. Í öllu sínu starfi leitast UN Women við að styrkja grasrótar- og góðgerðarsamtök á hverjum stað því þau búa yfir sérþekkingunni og hafa þegar greint vandann og lausnirnar sem þarf.

Þannig styður UN Women við góðgerðarsamtök Fattal, sem veitir litlum, kvenreknum fyrirtækjum stuðning í þessu erfiða árferði. Fyrirtækin fá m.a. tölvur og annan búnað sem er sérsniðinn að þeirra þörfum og gerir þeim kleift að hefja rekstur að nýju. Á síðastliðnu ári hafa 109 fyrirtæki hlotið slíka aðstoð.

Caroline Fattal, UNW

Caroline Fattal, frumkvöðull

„COVID-19 lokanir gerðu þessum fyrirtækjum illkleift að opna aftur í janúar, eins og vonir stóðu til um. Áframhaldandi tekjuleysi þýðir að þau standa ekki undir leigu eða öðrum kostnaði,“ segir Fattal, en áður en sprengingin varð, hafði COVID-19 veikt stöðu líbanskra kvenna á vinnumarkaði umtalsvert. Konur voru líklegri til að missa vinnuna og sinntu frekar umönnun og fjarnámi barna.

Caroline Fattal er frumkvöðull í viðskiptalífinu í Mið-Austurlöndum og hefur í fjórgang verið nefnd ein af 100 valdamestu arabísku konunum í viðskiptum af Forbes Middle East, síðast árið 2020. Góðgerðarsamtök Fattal hafa það að markmiði að styðja við líbanskar konur í viðskiptum.

„Við vinnum að því að auka jöfnuð á vinnumarkaði með fræðslu og þjálfun. Við erum í góðu sambandi við konurnar sem til okkar leita og veitum þeim ráðgjöf. Við reynum líka að efla samhug meðal kvenna og hvetjum þær til að styðja við hverja aðra,“ segir Fattal.

„Ef konur fylltu fleiri stjórnunarstöður, hvort heldur innan fyrirtækja eða í stjórnmálum, væri Líbanon allt annað ríki en það er í dag. Ég vona að fleiri konur bjóði sig fram í næstu þingkosningum, því þær standa fyrir þeim breytingum sem Líbanon þarfnast. Það þarf að styðja við og styrkja konur í því að verða leiðtogar og að láta drauma sína rætast, því þær eru hreyfiafl til góðs,“ segir Fattal.

 

Related Posts
Mjanmar, Myanmar