
Palestínsk kona gengur í gegnum flóttamannabúðir í Gaza. Mynd/UN Women
Sameinuðu þjóðirnar hafa aukið framlag sitt til neyðaraðstoðar til Gasa og veitt 11 milljónir Bandaríkjadala úr neyðarhjálparsjóði (CERF) sínum til að mæta brýnum þörfum fyrir veturinn.
Fjárveitingin sem yfirmaður hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna, Tom Fletcher, tilkynnti á mánudag mun styðja við hjálparstarf á Gasa, en gríðarlega mikilvægt er að koma inn matvælum, vatni, lyfjum og læknisþjónustu og neyðarskýlum sem fyrst.
Fjárveitingin kemur í kjölfar 9 milljóna Bandaríkjadala úthlutunar í síðustu viku sem ætlað er að tryggja eldsneytisbyrðar fyrir sjúkrahús.
Brýn þörf á auknum aðgerðum
Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra eru nú að auka umfang aðgerða á Gasa og veita lífsnauðsynlega aðstoð á svæðum sem hafa verið einangruð mánuðum saman. Það er þó brýnt að auka fjármögnun verulega til að mæta þeirri gífurlegu þörf sem ríkir.
Tom Flecter, samhæfingarstjóri neyðaraðstoðar, varaði við því að án aukins fjármagns til neyðaraðstoðar verður ekki hægt að koma henni til fólks. Samkvæmt Mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (OCHA) hafa Sameinuðu þjóðirnar fengið samþykki frá ísraelskum yfirvöldum fyrir 190.000 tonnum af hjálpargögnum.
„Það að hleypa mannúðaraðstoð inn á svæði er lagaleg skylda ríkja. Við munum ekki líða afskipti eða hömlur á mannúðaraðstoð okkar,“ sagði Fletcher um leið og hann hvatti Ísrael til að tryggja frjálst flæði neyðaraðstoðar til Gasa, en til að uppfylla grunnþarfir fólks þarf meira en þúsund bílfarma á viku.
UN Women heldur áfram að vinna með grasrótarhreyfingum sem leiddar eru af konum á Gasa, til þess að reyna að veita lífsnauðsynlega aðstoð, fræðslu og stuðning. En umfang þjáningarinnar og skortsins á svæðinu er langt umfram þau úrræði og það fjármagn sem stendur til boða.

