Kynbundinn launamunur hefur meira en efnahagslegar afleiðingar fyrir konur – Yfirlýsing frá UN Women í tilefni Alþjóðlega jafnlaunadagsins.

Heim / Fréttir / Kynbundinn launamunur hefur meira en efnahagslegar afleiðingar fyrir konur – Yfirlýsing frá UN Women í tilefni Alþjóðlega jafnlaunadagsins.

„Við stöndum með konum á vinnumarkaðnum um allan heim í baráttunni fyrir því að uppræta launamun kynjanna og ná jöfnum launum fyrir jafn verðmæt störf. Þetta viðvarandi bil er grundvallarmisrétti sem grefur undan réttindum kvenna, stofnar afkomuöryggi þeirra í hættu og hindrar sjálfbæra efnahagsþróun.“

Mynd: UN Women/Ryan Brown

Þetta kemur fram í yfirlýsingu UN Women í tilefni alþjóðlega jafnlaunadagsins í dag, 18. september. Þá segir að fyrir þremur áratugum hafi leiðtogar heimsins gefið loforð um lagabreytingar og aðgerðir til að tryggja rétt fólks til sömu launa fyrir sömu störf, eða jafn verðmæt störf. Þetta loforð komi fram í Peking sáttmálanum, en á næsta ári verða liðin 30 ár síðan hann var undirritaður. Þrátt fyrir þau loforð og aukna skuldbindingu stjórnvalda með tilkomu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, fá konur að meðaltali 20% lægri laun en karlar á heimsvísu. Þá er bilið enn meira fyrir jaðarsettar konur og konur sem standa frammi fyrir margþættri mismunun, meðal annars vegna fötlunar og uppruna.

Óleiðréttur launamunur karla og kvenna hér á Íslandi eykst á milli ára samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofan birti á dögunum. Munurinn var 9,3% árið 2023 en var 8,6% árið áður.

„Kynbundinn launamunur hefur meira en efnahagslegar afleiðingar fyrir konur. Hann endurspeglar einnig þær kerfisbundnu hindranir sem hindra framgang kvenna og stuðla að víðtæku vanmati á störfum þeirra, viðhalda ójöfnuði með ýmsum félagslegum viðmiðum, útilokun í starfi og innan atvinnugreina og ójöfnum aðgangi að mannsæmandi störfum og leiðtogahlutverkum. Að jafna launamun kynjanna er réttlætis- og mannréttindamál sem myndi gagnast samfélaginu öllu. Alþjóðlegur jafnlaunadagur minnir okkur því á að við verðum að grípa til aðgerða til að taka á þessu víðtæka samfélagslega vandamáli sem misrétti er til að tryggja það að konur alls staðar hljóti þá virðingu og kjör sem þær eiga skilið.“

Mynd: UN Women/Ryan Brown

Í yfirlýsingunni fylgir áskorun til stjórnvalda, atvinnurekenda og allra hagsmunaaðila að innleiða og framfylgja jafnlaunalöggjöf og öðrum aðgerðum til að tryggja að konur hafi jafnan aðgang að menntun, þjálfun og möguleika á starfsframa.

„UN Women hefur skuldbundið sig til að efla mannsæmandi vinnu og stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf um allan heim og virkja helstu hagsmunaaðila til að flýta fyrir jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna.“

Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér: Advancing gender equality in the world of work – UN Women statement for International Equal Pay Day, 18 September.

Related Posts
Gender Snapshot 2024 - Forsíða á skýrslu