
Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women.
„Á alþjóðlega jafnlaunadeginum stendur UN Women með konum á vinnumarkaði um allan heim í áframhaldandi baráttu fyrir því að brúa kynbundinn launamun og tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf.” Þetta kemur fram í yfirlýsingu UN Women í tilefni alþjóðlega jafnlaunadagsins sem er 18. september ár hvert.
Konur þéna 20 prósentum minna en karlar
Í yfirlýsingunni er komið inn á að þrátt fyrir að leiðtogar heims hafi skuldbundið sig með undirritun Peking-sáttmálans fyrir þremur áratugum, um að setja lög og framfylgja lögum um jöfn laun kynjanna, sé djúpstæður og kerfisbundinn ójöfnuður enn til staðar.
Konur þéna að meðaltali 20 prósentum minna en karlar á heimsvísu. Launabilið er enn breiðara sé litið til jaðarsettra kvenna og kvenna sem standa frammi fyrir margþættri mismunun, meðal annars vegna fötlunar og uppruna.
,,Þessi mismunun grefur undan réttindum kvenna, veikir tekjuöryggi þeirra og hamlar hagvexti.”
Þarf að grípa til samræmdra aðgerða
Innan við fimm ár eru eftir til að ná Heimsmarkmiðunum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. UN Women leggur áherslu á að það þurfi að grípa til samræmdra aðgerða til að brúa kynbundinn launamun.
,,Með gögnum og tæknilegum stuðningi frá alþjóðastofnunum og rannsóknarstofnunum, og með virkri þátttöku einkageirans, borgarasamfélagsins og fræðasamfélagsins, getum við útrýmt launamuninum og tryggt fulla efnahagslega valdeflingu kvenna.”
Nú þegar 80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefst í New York er ákall sáttmála Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt samstarf og virðingu fyrir mannréttindum ítrekað.
,,Jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf eru bæði grundvallarréttindi og lykill að sjálfbærri þróun og jafnrétti kynjanna.”
Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni hér.

