Konum sem leiða ríkisstjórnir og gegna embættum fækkar

Heim / Fréttir / Konum sem leiða ríkisstjórnir og gegna embættum fækkar

Konum í stjórnmálum hefur fækkað á milli ára. Mynd/UN Women

Í nýrri samantekt frá UN Women, Women Political Leaders 2025, kemur fram að forysta kvenna í stjórnmálum hefur farið dvínandi. Konum sem leiða ríkisstjórnir og gegna ráðherraembættum fer fækkandi. Þetta varpar ljósi á að víða eru hindranir sem standa í vegi fyrir að fullt jafnrétti náist á sviði stjórnmála.

Framkvæmdastýra UN Women, Sima Bahous, segir kynjahalla í stjórnmálum skjóta skökku við þar sem rík þörf sé á inngildandi sjónarmiðum.

„Þegar konur eru útilokaðar frá æðstu stjórnunarstöðum tapar samfélagið allt og fer á mis við réttlátari stjórnunarhætti.“

 

Konur helst jafnréttismálaráðherrar

Dregið hefur úr sýnileika kvenna á sviði stjórnmála sem rekja má til bakslags á alþjóðavísu í jafnréttismálum. Við þetta bætist aukin tíðni ofbeldis í garð kvenna í stjórnmálum sem þær verða fyrir bæði í raunheimi og stafrænum heimi sem dregur úr pólitískri þátttöku og ýtir undir frekari kynjahalla.

Ríkjandi kynjaviðmið hafa áhrif á það hvernig er skipað í æðstu embætti og stjórnunarstöður. Meirihluti þeirra sem sinna ákvarðanatöku og stefnumótun, hvort heldur innanlands eða á alþjóðavettvangi, eru karlmenn. Þeir gegna embættum á sviði varnarmála (87%), fjármála (82%) og utanríkismála (82%) á meðan konur skipa embætti á sviði jafnréttismála (87%) og félags- og barnamála (71%).

Þá hefur jafnréttisráðuneytum í heiminum farið fækkandi – stofnunum sem gegna lykilhlutverki í innleiðingu kynjajafnréttis í stefnumótun og aðgerðum stjórnvalda. Frá árinu 2020 hefur jafnréttisráðuneytum í heiminum fækkað úr 80 niður í 74.

 

  • Með flestar konur í ráðherraembætti var Níkaragva en þar voru 9 af 14 ráðherrum konur (64,3%), þar á eftir koma Finnland með 11 kvenráðherra af 18 (61,1%) og Ísland er í þriðja sæti með 6 kvenráðherra af 10 (60,0%).
  • Í dag eru aðeins 27 lönd með konu sem þjóðarleiðtoga
  • 103 lönd hafa aldrei haft konu í embætti þjóðarleiðtoga
  • Árið 2025 voru konur í ráðherraembætti 22,9 % en árið 2024 voru þær 23,3 %
  • Ríkisstjórnum með jöfnu kynjahlutfalli hefur fækkað úr 15 niður í 9 frá því á síðasta ári
  • Í Evrópu og N-Ameríku er hlutfall kvenna í ráðherraembætti 31,4%
  • Í Rómönsku Ameríku og Karíbahafinu er hlutfall kvenna í ráðherraembætti 30,4%
  • Í Mið- og S-Asíu er hlutfall kvenna í ráðherraembætti aðeins 9%

 

UN Women hefur hvatt þjóðarleiðtoga og ríkisstjórnir heims til að grípa til tafarlausra aðgerða til þess að sporna gegn þessari alvarlegu afturför í jafnréttismálum.

„Full þátttaka kvenna í allri ákvarðanatöku er bæði réttlát og nauðsynleg til þess að standa við aðgerðaáætlun Peking-sáttmálans og markmið um sjálfbæra þróun,“ segir Bahous.

Related Posts