Sæmdarsett fyrir konur í Mosul

UN Women hefur hrint af stað neyðarsöfnun fyrir konur á flótta í Mosul sem búa við hræðilegar aðstæður og þurfa á þinni hjálp að halda. Með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1.490 kr.) veitir þú konu í Mosul sæmdarsett með öllum helstu nauðsynjavörum á borð við dömubindi, sápu og vasaljós.

Nánar um ástandið í Mosul:

Lesa meira

Í ljósi skelfilegs ástands í Mosul efnir UN Women á Íslandi til sms-neyðarsöfnunar fyrir konur á flótta í Írak. UN Women hvetur alla til að senda sms-ið KONUR í 1900 (1490 kr.) og veita konu á flótta sæmdarsett sem inniheldur dömubindi, sápu og vasaljós.

Yfir 600 þúsund konur og stelpur eru á vergangi í Mosul og kring. Þær sárvantar neyðaraðstoð og þeim fer fjölgandi með hverjum deginum. Konur í Mosul og nærliggjandi svæðum hafa verið innilokaðar og einangraðar síðastliðin tvö ár eftir að vígasveitir sem kenna sig við íslamskt ríki náðu borginni yfir á sitt vald. Þær hafa þurft að þola gróft ofbeldi, verið teknar sem gíslar og kynlífsþrælar og giftar hermönnum vígasveitanna en margar hafa horfið sporlaust. Þær skortir mat og aðrar nauðsynjavörur og flýja nú borgina.

„Konur í Mosul eru í hræðilegri stöðu og eiga ekkert. Þær hafa verið innilokaðar heima hjá sér undanfarin tvö ár og hvorki mátt eiga né nota síma, snjallsíma, internet, horfa á sjónvarp né eiga eiga í samskiptum við umheiminn á nokkurn hátt. Þær hafa verið sviptar lífsviðurværi sínu, reisn sinni og valdi yfir eigin lífi. Neyðin er gríðarleg og nú er mikilvægara en nokkru sinni að að hlúa að þessum hópi. UN Women vinnur að því að veita konum og stúlkum á svæðinu aftur rödd, lífsviðurværi, tilgang og aðstoða þær við að koma undir sig fótunum á ný. Nýlega settum við á fót griðastaði í búðum á Ninewa-svæðinu þar sem konur hljóta vernd og öryggi, áfallahjálp í kjölfar kynferðisofbeldis, sálrænan stuðning en fyrsta skrefið er að veita þeim sæmdarsett með helstu nauðsynjum sem gera konum kleift að halda í virðingu sína. Aftur á móti skortir fjármagn til að geta brugðist við neyðinni og haldið því áfram,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi sem var að efna til neyðarsöfnunar fyrir konur á flótta í Mosul og kring.

Nú um miðjan október réðust íraskar öryggissveitir ásamt hersveitum Kúrda inn í Mosúl með það að markmiði að ná borginni úr höndum vígasveita íslamska ríkisins. Hörð átök geysa í borginni og sem hafa gert það að verkum að íbúar borgarinnar flýja. Fólk hefur flúið meðal annars til Ninewa svæðisins suðaustur af Mosul þar sem unnið er að uppsetningu búða fyrir flóttafólk sem fjölgar óðum. UN Women samhæfir aðgerðir á svæðinu og tryggir að veitt sé kvenmiðuð neyðaraðstoð þar sem tekið er tillit til þarfa kvenna á svæðinu. Konurnar eiga ekkert og sárvantar nauðsynjar. Neyðin í Mosul er mikil og virðist eingöngu vera að aukast.

Lesa minna

sima-iconSendu sms-ið KONUR í 1900 og veittu konu á flótta sæmdarsett

Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á bankareikning 0101-05-268086, kt. 551090-2489 ásamt skýringunni Neyð. 

Þú getur einnig lagt starfinu lið með mánaðarlegu framlagi.