
geðheilbrigðis- og sálfélagslegum stuðningshópi. Ljósmynd: UN Women/Sulaiman Hejji
Árásirnar á Gaza hafa nú staðið yfir í tvö ár og lagt líf, fjölskyldur, heimili og lífsviðurværi meira en milljón kvenna og stúlkna á Gaza í rúst.
Áður en vopnahléið tók gildi voru tvær konur eða stúlkur drepnar á hverri klukkustund í tvö ár samfleytt. Talið er að minnst 33.000 konur og stúlkur hafi verið drepnar frá október 2023. Á meðan vopnahléið stendur yfir, er mikilvægt að veita tafarlausa mannúðaraðstoð til kvenna og stúlkna.
Hvað þurfa konur á Gaza?
Í stuttu máli þurfa þær allt. Þörfin er gríðarleg.
En konur á svæðinu nefna nokkur forgangsatriði:
- Konur og stúlkur þurfa mat og hreint vatn en einnig aðstöðu til að elda og geyma eigur sínar. Þær þurfa sápu og hreinlætisvörur til að geta þvegið sig og hreinsað þær fáu flíkur sem þær eiga enn þá. Þær þurfa einnig öruggt og mannsæmandi skjól, sérstaklega nú þegar vetur er að ganga í garð.
- Þær þurfa læknisaðstoð og lyf fyrir börn sín. Mörg þjást af magapestum og niðurgangi, sýkingum og hita. Heilbrigðisþjónusta er bráðnauðsynleg, sérstaklega fyrir barnshafandi konur og nýbakaðar mæður sem eru of vannærðar til að geta haft barn á brjósti. Hljóti þær ekki aðstoð til að næra börn sín, munu fleiri líf tapast.
- Þær þurfa dömubindi og aðstöðu til að þvo sér á meðan þær eru á blæðingum. Á meðan á átökunum stóð hafði 1 af hverjum 4 konum ekki aðgang að þjónustu tengdri kyn- og frjósemisheilbrigði. Um 700 þúsund konur gátu ekki sinnt grunnþörfum sínum á blæðingum.
- Á einu af hverjum sjö heimilum á Gaza er kona eina fyrirvinnan. Þær hafa takmarkaðan aðgang að fjármunum og atvinnu. Konur þurfa á beinum fjárframlögum að halda til að geta keypt helstu nauðsynjar.
- Þær þurfa vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Tíðni kynbundins ofbeldis eykst verulega í neyðaraðstæðum þegar fjölskyldur eru á flótta, friðhelgi einkalífs glatast og öryggisnet samfélagsins hverfur. Konur og stúlkur verða að geta leitað sér aðstoðar og fengið aðgang að úrræðum án ótta eða fordóma.
- Þær þurfa á geðheilbrigðisþjónustu og félagslegum stuðningi að halda. Þær þurfa örugg rými þar sem þær geta rætt reynslu sína, unnið úr sorg og áföllum vegna ofbeldis, missis og daglegrar lífsbaráttu. Hver kona, hver stúlka ber ósýnileg sár sem matur og vatn eitt og sér geta ekki læknað.
Einfaldar daglegar athafnir, eins og að borða, þvo sér eða annast barn, eru orðnar að baráttu. Konur og stúlkur þurfa ekki aðeins mannúðaraðstoð, heldur líka öryggi, og úrræði til að byggja líf sitt upp að nýju.
Af hverju skipta kynjasjónarmið máli í mannúðaraðstoð og uppbyggingu á Gaza?
Neyðarástandið á Gaza er ekki kynhlutlaust. Konur og stúlkur hafa borið þyngstu byrðarnar af tveggja ára stríði. Þær hafa verið drepnar, hraktar á flótta, misst ástvini sína og setið eftir með ábyrgðina á að halda fjölskyldum og samfélögum saman innan um hungursneyð og eyðileggingu.

flóttamannabúðunum í Deir al Balah, sem eru
staðsettar nálægt miðju Gazastrandarinnar.
Ljósmynd: UN Women/Sulaiman Hejji
Þegar mannúðaraðstoð tekur ekki tillit til sértækra þarfa kvenna og stúlkna, þá bregst hún. Matarúthlutanir sem ná ekki til einstæðra mæðra verða þess valdandi að börn eru svöng. Heilbrigðisþjónusta án mæðraverndar stofnar mæðrum og nýburum í hættu. Ef raddir kvenna eru útilokaðar frá uppbyggingarstarfinu verður ójöfnuður sjálfkrafa fléttaður inn í framtíð Gaza.
Kynjasjónarmið skipta máli því konur eru ekki aðeins þolendur átaka, heldur einnig lykilaðilar í uppbyggingu. Samtök undir forystu kvenna hafa verið í fremstu víglínu frá upphafi og veitt umönnun, vernd og von, jafnvel á erfiðustu tímunum. Það er kominn tími til að viðurkenna og styðja þær núna.
Að hvaða leyti eru þarfir kvenna ólíkar þörfum karla á Gaza um þessar mundir?
Eyðileggingin á Gaza hefur haft áhrif á öll, en stríðið hefur ekki haft sömu áhrif á konur og karla. Fyrir konur og stúlkur snýst lífsbaráttan ekki aðeins um mat, vatn og skjól, heldur einnig um heilsu, öryggi og umönnun fjölskyldunnar.
Meira en ein milljón kvenna og stúlkna þarf á mataraðstoð að halda og um það bil 250.000 þurfa aukin næringarefni. Þeirra á meðal eru barnshafandi konur og mæður með börn á brjósti.
Konur standa frammi fyrir hindrunum sem karlar gera ekki. Þar á meðal er skortur á aðgengi að frjósemis- og kynheilbrigðisþjónustu, vöntun á tíðarvörum og aukin hætta á kynbundnu ofbeldi í yfirfullum neyðarskýlum.
Menntakerfið er einnig hrunið. Yfir 318.000 stúlkur hafa þegar misst úr tvö ár í skóla og eiga á hættu að missa það þriðja. Öll börn á skólaaldri á Gaza hafa verið svipt grundvallarrétti sínum til menntunar, en fyrir stúlkur hefur þessi missir víðtækar og varanlegar afleiðingar. Án menntunnar aukast líkur á misnotkun og þvinguðum barnahjónaböndum, auk þess sem þær missa tækifæri til að byggja upp líf sitt á ný.
Hvernig bregðast samtök undir forystu kvenna á Gaza við neyðarástandinu og hvernig eru UN Women að hjálpa?
Kvenrekin félagasamtök hafa verið meðal fyrstu viðbragðsaðila á Gaza í gegnum allt stríðið. Jafnvel á erfiðustu tímum, þegar hjálparflutningar voru stöðvaðir og fjarskiptasamband rofnaði, héldu kvennasamtök áfram að starfa. Þau ráku samfélagseldhús, útdeildu mat og hreinlætisvörum, veittu sálfélagslegan stuðning og tengdu konur á flótta við neyðarstarf sem snýr að heilbrigðisþjónustu og vernd.

Þessi samtök hafa haldið lífi í fjölskyldum og samfélögum, oft með því að leggja eigið líf í hættu. Mörg þessara samtaka eiga rætur í nærsamfélaginu og eru leidd af hjúkrunarfræðingum, kennurum, félagsráðgjöfum og aðgerðasinnum sem þekkja staðhætti og skilja þarfir kvenna og stúlkna. Þau hafa stutt þolendur ofbeldis, barnshafandi konur og komið á fót öruggum rýmum fyrir börn á flótta. Þrátt fyrir þetta mikilvæga starf búa kvennasamtök á Gaza við mjög takmarkað fjármagn til að halda áfram að þjóna þeim samfélögum sem þau starfa í. Virk þátttaka þeirra er lykilatriði fyrir árangur í öllu uppbyggingarstarfi.
Framlög UN Women styðja við og efla starf kvennasamtaka á Gaza. Í meira en áratug hefur UN Women unnið í samstarfi við kvenréttindasamtök og samtök undir forystu kvenna á Gaza. Samstarfið felur meðal annars í sér fjárhagslegan stuðning, samhæfingu og tæknilega aðstoð. Í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar, mannúðaraðila og kvennasamtök tryggir UN Women að heilbrigðisþjónusta og mataraðstoð berist örugglega til kvenna og að kvennasamtök fái fjármagn og eigi fulltrúa í ákvarðanatöku og uppbyggingarstarfi.
Hvað þarf að gera til að tryggja aðkomu kvenna að uppbyggingu Gaza?
Vopnahléið verður einnig að marka upphaf uppbyggingar með þátttöku kvenna. UN Women kallar eftir tafarlausum, kynjamiðuðum aðgerðum til að gera þetta að veruleika.
- Það þarf að tryggja að lífsnauðsynleg aðstoð berist konum og stúlkum á öruggan og skilvirkan hátt. Jafnframt þarf að sjá til þess að ráðstafanir séu innleiddar til að tryggja að grundvallarréttindi kvenna séu virt.
- Það þarf að tryggja að kvenrekin félagasamtök fái nægt fjármagn og taki virkan þátt í mannúðaraðstoðinni. Þessi samtök njóta trausts í samfélaginu, hafa góða tengingu við fólk og geta því komið aðstoðinni beint til þeirra kvenna og stúlkna sem oftast verða út undan.
- Tryggja þarf valdeflingu og réttindi kvenna frá fyrsta degi uppbyggingar. Það þýðir að ganga lengra en aðeins að ráðfæra sig við konur og stúlkurÞað þarf að fá þær til að taka þátt í að móta, framkvæma og stjórna uppbyggingarstarfinu.
Þegar við fjárfestum í konum í mannúðarstarfi skilar hver Bandaríkjadalur átta Bandaríkjadölum til samfélagsins. Þetta er grundvöllurinn að uppbyggingu sem endist sem snýst ekki aðeins um að byggja upp innviði, heldur einnig jafnrétti, reisn og von.
Framtíð Gaza verður að mótast með og af konum.
Þú getur stutt við konur og stúlkur á Gaza með því að hringja í eftirfarandi símanúmer:
901 7110 til að styrkja um 10.000 kr.
901 7105 til að styrkja um 5.000 kr.
901 7103 til að styrkja um 3.000 kr
901 7101 til að styrkja um 1.500 kr.

