
Frá Khan Younis flóttamannabúðunum í Suður-Gaza. Mynd: WHO
Átök, efnahagslegur óstöðugleiki og mannúðarkrísur eru orsök þess að milljónir eru á flótta í heiminum í dag. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 120 milljónir séu á flótta, sem er um 8% aukning frá árinu áður. 20. júní er alþjóðadagur fólks á flótta og er ætlað að vekja heiminn til vitundar um stöðu þeirra.
Konur og stúlkur á flótta upplifa gróf mannréttindabrot á flóttanum og fá tækifæri til að sjá fyrir sér og fjölskyldum sínum. Það er gríðarlega mikilvægt að efla konur og stúlkur á flótta sem og samfélögin sem taka á móti þeim svo hægt sé að stuðla að velferð þeirra og viðnámsþrótti. Aðgengi að félagsþjónustu, atvinnutækifærum og menntun þarf að vera í forgrunni í allri þjónustu til fólks á flótta. Þegar þetta er til staðar, eflir það ekki aðeins konur á flótta, heldur allt samfélagið.
UN Women starfar á vettvangi fjölda mannúðarkrísa og reynir að tryggja að öll neyðaraðstoð taki tillit til sértækra þarfa kvenna og stúlkna. UN Women leggur einnig ríka áherslu á að styðja við kvenrekin félagasamtök á vettvangi, því slík félagasamtök búa yfir þekkingu, reynslu og öflugu tengslaneti.
Frá Moldóvu til Nígeríu
Í Moldóvu styður UN Women við atvinnumöguleika úkraínskra kvenna á flótta.
Í Úganda vinnur UN Women í samstarfi við þarlend félagasamtök sem veita konum á flótta sálrænan og félagslegan stuðning.
Í Kamerún styður UN Women við menntun kvenna og stúlkna sem flúið hafa ofbeldi Boko Haram í Nígeríu. Tækifæri til menntunar hafa þýtt að konurnar geta nú séð fyrir fjölskyldum sínum, stutt við samfélög sín og veitt öðrum stúlkum sem flúið hafa ofbeldi stuðning og leiðsögn.
Í Jórdaníu starfar UN Women með jórdönskum stjórnvöldum og félagasamtökum að því að reka griðastaði fyrir konur á flótta og börn þeirra. Þar fá þær atvinnu, hljóta iðnmenntun og sálræna aðstoð sem og gæslu og menntun fyrir börn sín.
Í Cox‘s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladesh hefur UN Women um árabil unnið að því að efla viðnámsþrótt Róhingjakvenna, m.a. með því að koma á laggirnar markaði þar sem þær geta selt vörur sínar.
Í Guatemala starfar UN Women með Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna við ýmis verkefni er stuðla að forvarnarstarfi gegn kynbundnu ofbeldi.
Verða að fá ákvörðunarvald í eigin lífi
Á alþjóðadegi fólks á flótta, kallar UN Women eftir því að ríkisstjórnir og samstarfsaðilar sínir viðurkenni réttindi kvenna og stúlkna á flótta og taki þátt í að fjárfesta í framtíð þeirra. Þetta felur meðal annars í sér að tryggja öryggi þeirra, andlega heilsu, menntun, húsnæði og öruggar og löglegar leiðir fyrir konur á flótta að sækja um alþjóðlega vernd. Þetta felur einnig í sér aðkomu kvenna á flótta í öllum ákvörðunum er munu hafa áhrif á líf þeirra og framtíð. Aðeins þannig verður hægt að tryggja lausnir sem mæta þörfum kvenna og stúlkna á flótta.

