Hvað er útbreiddasta mannréttindabrot í heimi?

Heim / Fréttir / Hvað er útbreiddasta mannréttindabrot í heimi?
FACEBOOK cover UNWOMEN RikkaSamkvæmt Sameinuðu þjóðunum er ofbeldi gegn konum og stúlkum útbreiddasta mannréttindabrot í heimi.
UN Women hefur frá árinu 1976 barist ötullega fyrir auknum réttindum kvenna og stúlkna og á síðastliðnum 38 árum hafa átt sér stað gríðarlegar framfarir í málefnum kvenna. Aldrei áður hafa fleiri konur setið á þingi, í ríkisstjórnum, stjórnað fyrirtækjum, stundað háskólanám og verið á vinnumarkaði. Um allan heim er þó enn mikill fjöldi kvenna sem situr á hakanum og hefur ekki séð raunverulegar framfarir. Ein helsta fyrirstaða þess að jafnrétti náist er ofbeldi gegn konum og stúlkum. Það er ekkert samfélag á jarðríki sem ekki er þjakað af kynbundnu ofbeldi og meðan það viðgengst og refsileysi ríkir munu frekari framfarir standa á sér. Aukið jafnrétti næst með áframhaldandi þrautseigju og seiglu.
Staðreyndin er sú að…
…ríflega milljarður kvenna um heim allan hefur upplifað líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi á lífsleiðinni.
 …konur á aldrinum 15-44 ára eiga í meiri hættu á að vera nauðgað eða verða fyrir fyrir ofbeldi innan heimili síns heldur en að greinast með krabbamein, lenda í bílslysi, upplifa stríð eða greinast með malaríu.
 …yfir helmingur allra morða á konum í Ástralíu, Kanada, Ísrael, Suður Afríku og Bandaríkjunum er af hendi maka eða kærasta.
 …64 milljónir stúlkna undir 18 ára aldri hafa verið þvingaðar í hjónaband um heim allan. Það eru 39 þúsund stúlkur á hverjum einasta degi eða ein á þriggja sekúndna fresti. Af þessum sökum er mæðradauði helsta dánarorsök unglingsstúlkna á aldrinum 15-19 ára í þróunarlöndum.
 …140 milljónir stúlkna  hafa þurft að þola afskurð á kynfærum sínum.
 …Yfir 600 milljónir kvenna og stúlkna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert.
Kynbundið ofbeldi hefur víðtæk áhrif á samfélagið í heilsufarslegu-, efnahagslegu- sem og félagslegu tilliti en rannsóknir sýna að þegar konur eru heilbrigðar eru samfélög heilbrigð.
UN Women trúir því að forvarnir, fræðsla, aðgengi að réttri þjónustu og bætt löggjöf séu skilvirkustu leiðirnar til þess að stemma stigu við ofbeldi. Öll verkefni UN Women miða að því að styðja við og veita fórnarlömbum ofbeldis heildræna þjónustu með það að markmiði að þau verði virkir samfélagsþegnar á ný.
Við höfum ekki lengur efni á að setja plástur á sárin.Við þurfum skurðaðgerð sem fjarlægir rót meinsins.
Núna er tíminn til þess að leggja UN Women lið og verkefnin eru ærin. Stuðningur þinn við UN Women hefur ekki einungis áhrif á líf þeirra sem njóta góðs af verkefnunum með beinum hætti heldur snerta þau líf 24 milljóna manna um heim allan. Það er hagur allra að konur og stúlkur fái að lifa lífi án ofbeldis. Stattu með systrum þínum um heim allan og gakktu í Systralagið.
Með því að ganga í Systralag UN Women á Íslandi og gerast mánaðarlegur styrktaraðili tekur þú meðal annars þátt í að ….
…starfsrækja neyðarathvarf, útvega mat og fatnað fyrir Máritanískar konur og fjölskyldur þeirra sem losnað hafa úr þrældómi.
…styðja við fræðslu í eþíópískum skólum sem miðar að því að stöðva þvinguð hjónabönd.
…styrkja SMS-herferð í Suður Afríku sem nær til ungra kvenna og veitir þeim upplýsingar um ofbeldi gegn konum og hvernig það gerir þær berskjaldaðar fyrir HIV/AIDS.
…starfrækja neyðarathvarf á Fiji-eyjum sem veitir konum alla nauðsynlega þjónustu í kjölfar nauðgunar.
…styðja við uppbyggingu nýrra skóla í Víetnam sem bjóða stúlkum upp á öruggt umhverfi en um 20 prósent unglingsstúlkna hafi upplifað kynferðislega áreitni í skólanum. Þá fá bæði kynin jafnréttisfræðslu og fræðslu um afleiðingar kynbundins ofbeldis.
…starfrækja eina athvarfið í Kambódíu fyrir þolendur sýruárása.
…styðja við þjálfun fyrir lögreglumenn á Indlandi um afleiðingar kynferðisofbeldis en slíkt ofbeldi er gífurlega útbreitt þar í landi.
…veita marokkóskum konum sem þurft hafa að flýja í neyðarathvörf vegna ofbeldis lagalega, sálfræðilega og félagslega aðstoð.
Related Posts