HeForShe – Kynning í Landsbankanum

Heim / Fréttir / HeForShe – Kynning í Landsbankanum

 MG 9564Ný herferð UN Women á Íslandi undir merkjum HeForShe var kynnt í síðdegisboði í Landsbankanum í vikunni.

Magnús Orri Schram og Ólafur Stephensen stjórnarmenn UN Women á Íslandi kynntu herferðina og fjölluðu um það hvernig UN Women vinnur og hvernig tekjur af fjáröflun eru nýttar í þágu kvenna um allan heim. Steinþór Pálsson ávarpaði einnig starfsfólk og fjallaði um áherslur bankans á jafnréttismál.
Markmið HeForShe-herferðarinnar er að hvetja karlmenn á öllum aldri til að taka þátt í að útrýma kynjamisrétti. Mörg þúsund íslenskir karlmenn skráðu nafn sitt undir netyfirlýsingu HeForShe í haust og vonir standa til að þeir og margir fleiri leggi málefninu lið með því að styrkja UN Women með mánaðarlegu framlagi. UN Women styrkir verkefni sem stuðla að því að bæta mannréttindi kvenna, ýta undir efnahagslega og pólitíska valdeflingu kvenna og uppræta ofbeldi gegn konum í fátækustu löndum heims.
Af hverju að styðja við UN Women?
Landsnefnd UN Women á Íslandi styrkir ólík verkefni; allt frá því að vinna með stjórnvöldum að bættri löggjöf, starfrækja saumastofur fyrir sýrlenskar konur í flóttamannabúðum í Jórdaníu og bæta götulýsingu í Nýju Delí þar sem 95% kvenna hafa upplifað kynferðislega áreitni á götum úti.
UN Women styður verkefni sem felast í því að stuðla að sterkari löggjöf og stefnumótun hvað varðar réttindi og líf kvenna, forvarnaverkefni eins og fræðslu fyrir unga drengi um kynjajafnrétti og bæta aðgengi kvenna að viðeigandi þjónustu, sé brotið á þeim.
Af hverju sérstaklega karlmenn?
Í rannsókn á vegum UN Women er gefið til kynna að jafnrétti verði náð árið 2095 ef við höldum áfram á sömu braut á sama hraða. Með stráka og karlmenn um borð er talið að jafnrétti muni nást helmingi fyrr. Við hvetjum því karlmenn og stráka sérstaklega til að skrá sig og hafa raunveruleg áhrif á líf milljóna kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims.
Landsbankinn er styrktaraðili herferðarinnar.
Skráðu þig núna á www.heforshe.is

Saman erum við sterkari!

Related Posts