HeforShe: Hvaða áhrif getur þú haft?

Heim / Fréttir / HeforShe: Hvaða áhrif getur þú haft?

emmamynd fyrir vefEmma Watson, velgjörðaráðherra UN Women hélt aðra þrumuræðu á World Economic Forum í Davos á dögunum.

Þar tók hún upp þráðinn í vitundarvakningunni HeforShe og kynnti næsta skref herferðarinnar sem nefnist 10x10x10. Átakið felur í sér hvatningu til fyrirtækja, stjórnvalda og háskóla við að vera leiðandi aðilar í að koma á jafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna víðsvegar um heiminn. Þessum geirum var þar með gert að gefa raunhæf loforð um að koma á auknujafnrétti. Hver geiri mun notast við ólíkar nálganir við útrýmingu kynjamisréttis og er markmiðið að sýna skilvirkni aðgerðanna með sögum sem lýsa ólíkum leiðum við útrýmingu þess. Watson spurði á fundinum:
„Hvaða áhrif getur þú haft? Hvernig áhrif? Hvar getur þú haft áhrif? Og hvenær getur þú haft áhrif? Við viljum heyra frá ykkur og læra af ykkur.“
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna nefndi á blaðamannafundinum að HeforShe-herferðin sameinaði ólíka hópa fólks. Feður sem vilja ala upp sterkar dæturleiðtoga sem vita að samfélög þeirra eflast þegar konur sinna störfum stjórnmála og viðskipta til jafns við karlmenn, venjulegt fólk sem er löngu komið með nóg af ofbeldi og mismunun gagnvart konum. Hann sagði herferðina sameina; einstaklinga og fyrirtæki, stjórnmálaleiðtoga og grasrótarhreyfingar, heimsfrægt fólk og almenning sem vilji saman taka þátt í hnattrænum breytingum.
Íslenska landsnefndin mun fara af stað með átak tengt HeforShe með vorinu. Við minnum alla stráka og karlmenn til að taka afstöðu gegn ójafnrétti kynjanna hér.

Related Posts