
Ngern Khamseesin ólst upp í Norður-Taílandi. UN Women/Pathumporn Thongking Ngern
Júní er Pride-mánuður þar sem fjölbreytileikanum er fagnað um allan heim. Í tilefnið Pride-mánaðar hefur UN Women safnað sögum tælenskra LGBTIQ+ aðgerðarsinna sem berjast fyrir réttindum hinseginfólks.
Ngern Khamseesin ólst upp í Norður-Taílandi og var sjöunda barn í tíu systkina hópi. Henni var úthlutað karlkyni frá fæðingu en kyntjáning hennar var kvenleg frá ungum aldri og varð hún fyrir mótlæti – sérstaklega frá föður sínum, sem setti henni fyrir erfiðsvinnu til að „herða hana upp“.
Tíu ára gömul gekk hún í munkaklaustur. Hún heillaðist af saffranlituðum kuflum en var þó ekki búin undir þær stífu reglur og útilokun sem hún upplifði í klaustrinu.
Síðar á lífsleiðinni lærði hún hárgreiðslu og opnaði eigin snyrtistofu auk þess að annast aldraða móður sína. 34 fjögurra ára gömul gekkst hún undir kynstaðfestingar aðgerð. „Fólk fór að sjá hina raunverulegu mig,“ segir hún.
Í Chiang Khong varð Ngern þorpssjálfboðaliði um heilsu og hlaut viðurkenningu fyrir þjónustu sína, sköpunargáfu og samkennd. Ngern stuðlar einnig að umhverfis-sjálfbærni með skapandi endurvinnsluverkefnum.
Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir mismunun hefur Ngern alltaf gefið til baka. „Ég vil vera fyrirmynd fyrir samfélag mitt, manneskja sem aðrir geta treyst á,“ segir hún. „Ég hef upplifað mismunun og að þarfir mínar séu hundsaðar. Nú vil ég hjálpa öðrum.“

