Götukynnar UN Women hafa hafið störf og munu í sumar kynna starfsemi UN Women og hvetja almenning til að gerast ljósberar.
Tíu einstaklingar gegna starfi götukynna í sumar og fræða almenning um sértækar afleiðingar Covid-19 á konur, um skaðsemi barnahjónabanda og hvernig UN Women vinnur að því að valdefla konur og stúlkur um allan heim.
Götukynnarnir verða meðal annars við störf í miðbæ Reykjavíkur, við sundlaugar og verslunarmiðstöðvar.
Allt frá upphafi hafa götukynnar samtakanna gegnt lykilhlutverki við að afla mánaðarlegra styrkja til verkefna UN Women.
Hefur fjöldi þeirra einstaklinga sem leggja samtökunum lið með mánaðarlegum framlögum aukist gríðarlega meðfram aukinni vitund um starfsemi UN Women.

