Gögn sýna fram á gróf mannréttindabrot í Súdan

Heim / Fréttir / Gögn sýna fram á gróf mannréttindabrot í Súdan
Súdan, un women, átök

Gögn frá SÞ sýna að konur og stúlkur í Súdan hafa verið beittar grófu ofbeldi.

Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem falið var að rannsaka mannréttindabrot í Súdan hefur skilað skýrslu um stöðu mála. Gögn benda til þess að RSF hafi framið fjölda mannréttindabrota frá því að stríðið braust út í apríl 2023. Þá er RSF sagt hafa beitt nauðgunum gegn almennum borgurum á sínu yfirráðasvæði, þar með talið hópnauðgunum og mansali.

Rannsóknin leiddi í ljós að þó að vísbendingar séu um að SAF og tengdar vígasveitir beiti einnig nauðgunum séu þær flestar framdar af RSF og þá einkum í Khartoum, Darfur og Gezira-héruðum. Nauðgunum var m.a. beitt gegn almennum borgurum sem RSF taldi að höfðu tengsl við SAF. Þá var nauðgunum beitt til að bæla niður andstöðu og hvers kyns mótspyrnu við RSF.

„Umfang þess kynferðislega ofbeldis sem við skrásettum í Súdan er sláandi,“ sagði Mohamed Chande Othman, sem fór fyrir rannsóknarnefndinni. „Þær aðstæður sem almenningur býr við, og þá sérstaklega konur og stúlkur, eru skelfilegar og krefst þess að brugðist sé við tafarlaust.“

 

Gögn sýna hræðilegt ofbeldi gegn konum

Rannsóknarnefndin segir konur og stúlkur í Súdan beittar hræðilegu ofbeldi af RSF. Hópnauðgunum er ítrekað beitt, konum og stúlkum er rænt og þær þvingaðar í hjónaband eða seldar mansali. Brotin áttu oftast stað þegar RSF réðst inn í þorp, borgir og flóttamannabúðir, en einnig þegar fólk reyndi að flýja svæði sem RSF hafði lagt undir sig.

Rannsóknarnefndin segir ofbeldið hafa verið sérstaklega hrottalegt í Darfur-héraði. Þar var ýmsum vopnum einnig beitt gegn þolendum. Ofbeldið átti sér oft stað fyrir framan aðra fjölskyldumeðlimi, sem einnig var hótað ofbeldi. Mörg dæmi voru um að karlmenn og drengir í Darfur-héraði voru beittir kynferðislegu ofbeldi, sérstaklega í varðhaldi.

BBC hefur fjallað um rannsókn Sameinuðu þjóðanna og það ofbeldi sem á sér stað í Súdan. Kvenrekin félagasamtök sögðu í viðtali við BBC að vísbendingar væru um að konur og stúlkur hafi svipt sig lífi í kjölfar árásanna.

Rannsóknarnefndin segir í skýrslu sinni að niðurstöðurnar sýni að meðlimir RSF hafi gerst sekir um gróf mannréttindabrot og að mikilvægt sé að sækja slík mál til saka.

„Þessar konur, stúlkur, drengir og karlmenn í Súdan búa við stöðuga ógn við að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þau þurfa vernd. Ef enginn er látinn sæta ábyrgð fyrir þessa glæpi mun hringur haturs og ofbeldis halda áfram. Refsileysinu sem ríkt hefur þarf að ljúka og sækja þarf gerendur mannréttindabrota til saka,“ segir Joy Ngozi Ezeilo, sérfræðingur í rannsóknarnefndinni.

 

Fjórðungur á flótta

Um fjórðungur allra íbúa Súdans er á flótta vegna átakanna. Meirihluti þessa fólks er mjög berskjaldað fyrir mannréttindabrotum og ofbeldi. Áhrifin af þessum brotum verða meiri og dýpri sé litið til þess að fá eða engin úrræði eru til staðar fyrir þolendur. Heilbrigðisstofnanir eru í lamasessi, lítið aðgengi er að lyfjum og erfitt er að fá sálræna aðstoð og áfallahjálp. Þá búa þolendur kynferðisofbeldis og fjölskyldur þeirra við útskúfun, þolendaskömm og þolendasmánun.

„Ábyrgðin og skömmin sem fylgir þessum svívirðilegu glæpum liggja alfarið hjá gerendum. Ef lögsaga Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) nær ekki til alls Súdans og á meðan ekki er komið á fót sjálfstæðu dómskerfi sem starfar með ICC munu gerendurnir halda áfram að valda skelfingu og eyðileggingu í Súdan,“ sagði Mona Rishmawi, sérfræðingur í rannsóknarnefndinni.

„Það er deginum ljósara að þolendur þurfa tafarlausan stuðning og þjónustu á borð við læknisþjónustu og lagalega ráðgjöf. Þetta skortir alfarið í Súdan og þarf að bæta undir eins,“ sagði Rishmawi.

 

Hvað gerir UN Women í Súdan?

Meðal verkefna UN Women í Súdan er rekstur miðstöðva fyrir konur og stúlkur þar sem þær geta sótt nauðsynlega þjónustu og fengið sálrænan stuðning. Þá styður UN Women í Súdan við kvenrekin félagasamtök sem styðja meðal annars við þolendur ofbeldis.

Með kaupum á FO-húfunni 2024 getur þú stutt við konur og stúlkur í Súdan. Allur ágóði rennur óskertur til verkefna UN Women í landinu sem hafa það markmið að uppræta kynbundið ofbeldi og styðja við þolendur. Húfan var hönnuð í samstarfi við fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttur og er framleidd af VARMA. Verkefnið er kostað af Öryggismiðstöðinni, sem er bakhjarl FO-herferðarinnar í ár.

Related Posts