
Garðheimar styrktu starf UN Women á Íslandi með sölu á mæðradagsblómvendi.
Garðheimar styrktu starf UN Women á Íslandi um 415.000 krónur með sölu á sérstökum blómvendi í tilefni mæðradagsins þann 8. maí síðastliðinn. UN Women á Íslandi mun nýta styrkinn í að veita konum á flótta lífsbjargandi aðstoð.
Garðheimar létu 500 krónur af hverjum seldum mæðradagsblómvendi renna til verkefna UN Women og söfnuðust alls 415.000 krónur. Að sögn Þórdísar Zophíu, deildarstjóra blóma- og gjafavörudeildar Garðheima, tóku viðskiptavinir vel í samstarfsverkefnið.
UN Women á Íslandi er afar þakklátt Garðheimum og viðskiptavinum þeirra fyrir stuðninginn. Fjárstuðningur sem þessi gerir okkur kleift að halda áfram að styðja við verkefni UN Women á heimsvísu, m.a. verkefni sem styðja við konur á flótta og veita þeim kvenmiðaða neyðaraðstoð.
82 milljónir á flótta
Þörfin er mikil, en aldrei hafa verið fleiri á flótta í heiminum og í dag. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 82 milljónir einstaklinga séu á flótta eða á vergangi í heiminum í dag. Þegar fólk flýr heimili sín, sama hvort það sé vegna stríðsátaka, náttúruhamfara eða ofsókna, gefst sjaldan tími til að pakka, hvað þá að hugsa fyrir nauðsynjum. Á sama tíma gleymast sértækar þarfir kvenna og stúlkna ítrekað þegar mannúðar- og neyðaraðstoð er veitt.
Ný fræðsluherferð UN Women á Íslandi „Náðir þú að pakka?“ fræðir almenning um stöðu kvenna og stúlkna á flótta og mikilvægi þess að hugað sé að sértækum þörfum þeirra. Þegar rætt er um sértækar þarfir kvenna á flótta, er m.a. átt við einfalda hluti á borð við tíðarvörur, nærfatnað og næringarþarfir barnshafandi og mjólkandi kvenna, en einnig þætti á borð við aðgengi að baðaðstöðu, öryggi kvenna í flóttamannabúðum og heilbrigðisþjónustu.

