
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi
UN Women á Íslandi fagnar í dag að 35 ár séu liðin frá stofnun samtakanna. Í 35 ár hefur UN Women á Íslandi unnið að því að fræða almenning um stöðu kvenna og stúlkna um allan heim og afla fjár til verkefna UN Women á heimsvísu.
Á tímamótum sem þessum er tilefni til að líta yfir farinn veg og rifja upp áfangasigra samtakanna. Saga UN Women á Íslandi hófst árið 1989 þegar nokkrar hugsjónakonur tóku sig saman og stofnuðu landsnefnd UNIFEM á Íslandi. Tíu einstaklingar mættu á stofnfundinn þar sem kosið var í fimm manna stjórn og Sæunn Andrésdóttir kjörin fyrsti formaður landsnefndarinnar.
Konurnar sem skipuðu stjórnina lögðu á sig ómælda vinnu til að kynna starfsemi UNIFEM fyrir stjórnvöldum og almenningi, allt í sjálfboðavinnu og samhliða fullri vinnu annars staðar. Fyrstu árin einkenndust af takmörkuðum áhuga og skilningi á málefninu, en á þessum tíma var lítið rætt um þróunarmál á Íslandi. Með árunum jókst þó áhugi hjá stjórnvöldum, einkageiranum og almenningi fyrir starfi landsnefndar UNIFEM og var það þrotlausri vinnu stjórnar UNIFEM að þakka.
Tímamót þegar UN Women var sett á fót
Árið 2006 urðu svo tímamót í sögu UNIFEM á Íslandi þegar hægt var að ráða fyrstu starfskonu landsnefndarinnar í fullt starf. Annar stór og mikilvægur áfangi í sögu landsnefndarinnar varð árið 2011 þegar Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að sameina UNIFEM-sjóðinn nokkrum smærri rannsóknarstofnunum um kynjajafnrétti innan Sameinuðu þjóðanna. UN Women, jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna, var sett á fót og er enn í dag eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem starfar alfarið í þágu kvenna og jafnréttis. Með stofnun UN Women sýndu aðildarríki SÞ í verki hve mikilvæg jafnréttismál eru fyrir framþróun heimsins alls, því það er löngu orðið ljóst að án jafnréttis verður ekki mögulegt að uppfylla önnur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Ísland stórasta land í heimi í jafnréttismálum
UN Women á Íslandi er ein þrettán starfandi landsnefnda UN Women. Landsnefndirnar eru skráðar sem frjáls félagasamtök og eru ekki reknar í hagnaðarskyni. Helsta hlutverk þeirra er að styðja við verkefni UN Women á heimsvísu með fjáröflun og vitundarvakningu. Átta ár í röð hefur UN Women á Íslandi getað sent hæstu kjarnaframlög til verkefna UN Women allra landsnefnda UN Women, óháð höfðatölu. Mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi, kallaðir Ljósberar, eru stærstu bakhjarlar samtakanna og eru framlög þeirra ástæðan fyrir því að UN Women á Íslandi geta sent út hæstu kjarnaframlögin ár eftir ár. Að auki stendur UN Women á Íslandi reglulega fyrir fjáröflunum sem eru eyrnamerktar ákveðnum verkefnum eða landssvæðum. Þar má nefna hina árlegu FO-herferð sem hefur frá upphafi safnað meira en 100 milljónum í verkefni UN Women sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi.
Getum við orðið fyrst í heimi?
Verkefni UN Women á heimsvísu er mörg og margþætt en hafa öll sama markmið – að vinna að framgangi jafnréttis og efla konur og stúlkur um allan heim. Þetta er gert með ýmsum leiðum, m.a. í samvinnu og samtali við stjórnvöld ríkja til að þrýsta á lagabreytingar, með því að veita kvenmiðaða neyðaraðstoð á tímum hamfara og átaka og með fjárstuðningi við kvenrekin félagasamtök, til dæmis í Afganistan.
Jafnrétti hefur aldrei fengist án óeigingjarnar baráttu kvenna og bakhjarla þeirra. Og það mun aldrei nást nema öll leggi sín lóð á vogarskálarnar. Á 35 ára afmæli UN Women á Íslandi hvetja samtökin ný stjórnvöld til þess að einsetja sér að verða fyrsta ríki heims til að ná jafnrétti og halda áfram að vera fánaberi jafnréttis á alþjóðavettvangi. Næsta kynslóð Íslendinga gæti þar með orðið fyrsta kynslóðin í mannkynssögunni sem elst upp við kynjajöfnuð. Með þeim hætti getur litla Ísland sannarlega skráð sig í sögubækurnar – en það gerist ekki án fjármagns og samtakamáttar.
Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi

