Fundur kvennanefndar SÞ hafinn

Heim / Fréttir / Fundur kvennanefndar SÞ hafinn
Image MDG progress 1Starfskonur UN Women á Íslandi halda til New York í dag á fund Kvennanefndar SÞ (CSW) sem hófst í gær. Í ár er þema fundarins áskoranir og árangur í framkvæmd Þúsaldamarkmiðanna hvað varðar konur og stúlkur en bág staða þeirra er ein helsta fyrirstaða þess að markmiðunum átta verði náð.
Þúsaldarmarkmiðin tóku gildi árið 2000 og eiga þau að stuðla að mannsæmandi og sjálfbærri framtíð fyrir alla íbúa heims. Aðildarríkin samþykktu að reyna að ná þeim fyrir árið 2015. Miklar framfarir hafa orðið á ýmsum sviðum, t.d. hvað varðar skólagöngu barna. Hinsvegar hallar enn á konur, mæðradauði er hár á mörgum svæðum og konur eru sá hópur sem líklegri er til að búa við sárafátækt.
Því er mikilvægt að aðildarríkin, alþjóðastofnanir og frjáls félagasamtök leggist á eitt við að búa til heildstæða aðgerðaráætlun sem tekur við af Þúsaldarmarkmiðunum (Post-2015) og hefur jafnrétti og sjálfbærni að leiðarljósi.
Markmiðin átta:
1. Útrýma sárustu fátækt og hungri
2. Tryggja öllum grunnmenntun
3. Vinna að jafnrétti og styrkja stöðu kvenna
4. Draga úr barnadauða
5. Bæta heilsu mæðra
6. Berjast gegn alnæmi/eyðni, malaríu og öðrum sjúkdómum
7. Tryggja sjálfbæra þróun
8. Þróa hnattræna þróunarsamvinnu
Fundurinn stendur yfir í tvær vikur og er þessi vettvangur frábært tækifæri fyrir aðildarríki og frjáls félagasamtök að koma saman, deila reynslu og aðferðum við að auka jafnrétti kvenna og stúlkna.
Starfskonur UN Women á Íslandi taka þátt í fundinum líkt og undanfarin ár og fylgjast jafnframt með spennandi hliðarviðburðum frjálsra félagasamtaka og samningaviðræðum aðildarríkja SÞ. Hægt er að fylgjast með framvindu mála á Twitter og á FB. Við munum einnig deila fréttum af fundinum á heimasíðu okkar. Hægt er að skoða fréttir tengdar fundinum á samfélagsmiðlunum undir leitarorðinu/hashtag #CSW58.
Áhugaverðir hlekkir um þúsaldarmarkmiðin og starf UN Women hér:
http://www.unwomen.org/en/news/in-focus/mdg-momentum
http://www.unwomen.org/en/news/in-focus/csw
Related Posts