Fullt út úr dyrum í FO-útgáfupartýi

Heim / Fréttir / Fullt út úr dyrum í FO-útgáfupartýi
UN Women á Íslandi hóf sölu á spánýjum FO-varningi í liðinni viku. FO-varningurinn 2024 er fagurblá húfa með ljósbláu FO-merki og er í takt við bláa lit Sameinuðu þjóðanna. FO-húfan 2024 var hönnuð í samstarfi við fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttur, sem hannar undir merkjunum Helicopter og BAHNS og tekur hún einnig þátt í herferðinni sem fyrirsæta. Húfan er framleidd af VARMA og kemur í tveimur sniðum, sem hin fullkomna „kollhúfa“ og sem hefðbundin húfa með einföldu uppábroti.
Asil Al Masri er ein þeirra sem situr fyrir í FO herferðinni í ár / Mynd: Wyom Studios

FO-herferðin í ár er til stuðnings verkefnum UN Women í Súdan. Hörð átök hafa geisað í ríkinu á milli stjórnarhersins SAF og uppreisnarhersins RSF síðan í apríl 2023, sem hafa orsakað algjört neyðarástand þar. Herferðin er styrkt af Öryggismiðstöðinni, sem stendur straum af öllum framleiðslukostnaði FO-húfunnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allan ágóða til verkefna UN Women í Súdan, sem miðast nú nær alfarið að því að veita kvenmiðaða neyðaraðstoð á þessum átakatímum.

Yfir 100 milljónir í gegnum FO

UN Women á Íslandi hefur selt FO varning frá árinu 2015 og er herferðin fyrir löngu orðin flaggskip íslensku landsnefndarinnar. Frá árinu 2015 hafa samtals safnast yfir 100 milljónir til verkefna UN Women um allan heim sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi og valdefla konur og stúlkur.

Með fjármagninu sem safnast í ár verður meðal annars hægt að veita þolendum ofbeldis aðgengi að þjónustu í samstarfi við súdönsk félagasamtök og vinna að því að koma upp þjónustumiðstöðvum fyrir konur og stúlkur á flótta.

Fullt út úr dyrum í FO-útgáfupartýi

Fullt var út úr dyrum í FO-útgáfupartýi á Loft Hostel síðastliðinn föstudag, þar sem UN Women á Íslandi hóf almenna sölu á FO-húfunni og ýtti FO-herferðinni formlega úr vör. Samstaða og gleði einkenndi stemninguna þar sem tónlistarkonurnar GDRN, Elín Hall og Katla Njálsdóttir (Mammaðín) og Apex Anima skemmtu gestum. Matarhönnuðirnir og listakonurnar Elín Arna og Jordan buðu upp á matarupplifun sem var gædd innblæstri frá Íslandi og Súdan og fór það vel í gesti. Ölgerðin og Mist Iceland buðu upp á svalandi drykki og Sætar syndir sáu um eftirréttinn.

Húfan kemur í takmörkuðu upplagi.  Þú getur keypt FO-húfuna og FO-kollhúfuna í gjafaverslun UN Women á Íslandi og í Kiosk Granda.

Related Posts
Gender Snapshot 2024 - Forsíða á skýrslu