Ertu á aldrinum 16-30 ára? Hefurðu brennandi áhuga á jafnréttismálum? Viltu vera með?
Aðalfundur ungmennaráðs UN Women á Íslandi fer fram fimmtudaginn 9. september, klukkan 17.30 í húsakynnum Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi 77, 101 Reykjavík.
Fundurinn er opinn ungu fólki af öllum kynjum á aldrinum 16-30 ára og fer bæði fram í persónu og rafrænt í gegnum Zoom. Sótt er um þátttöku með því að senda nafn og kennitölu á youth@unwomen.is. Á fundinum verður farið yfir liðið starfsár ungmennaráðsins og ný stjórn kosin.
Ungmennaráð UN Women á Íslandi hefur verið starfrækt frá árinu 2012 og hefur verið sérlega öflugt í ungmennafræðslu um málefni kvenna og jafnréttis. Ráðið stendur einnig fyrir vitundavakningar- og fjáröflunarviðburðum jafnt og þétt yfir starfsárið en þeirra helstu verkefni eru kynningar á starfsemi UN Women í grunn- og framhaldsskólum.
UN Women á Íslandi hvetur sem flest ungmenni til að taka þátt í fundinum og starfsárinu sem framundan er.

