
Margrét Rán Magnúsdóttir, söngkona, í FO-herferð UN Women Íslandi
Sala á FO-húfunni 2024 aflaði 8.118.170 króna til verkefna UN Women í Súdan. Fjármagnið mun styðja við um 280 fatlaðar konur á flótta í Kassala-héraði í Súdan.
Verkefnið kallast Promoting the Resilience of Displaced Women and Girls with Disabilities and Enhancing Their Participation in Peace Efforts og er ætlað að styðja við fatlaðar konur á flótta og fjölskyldur þeirra. Lögð verður áhersla á að efla viðnámsþrótt fatlaðra kvenna á flótta, auka atvinnutækifæri þeirra, efla forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi og auka aðgengi þeirra að mannúðaraðstoð. Þá munu þær hljóta sálrænan stuðning, læknisþjónustu, jafningjastuðning og aðkoma þeirra að friðarviðræðum verður tryggð. Verkefnið mun einnig styðja við vitundarvakningarátak sem hefur það markmið að vinna gegn fordómum í garð fatlaðra kvenna.
„Við erum mjög spennt fyrir verkefninu og möguleikum þess. Við vonum að það muni stuðla að breytingum til framtíðar og ýta undir inngildingu fatlaðra kvenna í móttökusamfélögum. Hluti fjármagnsins frá Íslandi mun einnig gera okkur kleift að ráða inn verkefnastýru sem mun halda utan um verkefnið og ólíka þætti þess. Við munum ráða konu með fötlun í það starf. Það er ekki aðeins mikilvægt að einstaklingur með djúpa þekkingu á málaflokknum og þeim hindrunum sem konur með fatlanir mæta á átakatímum ráðist til starfsins, heldur styður það einnig við stefnu UN Women um fjölbreytileika innan starfshóps,“ segir Afraa Ahmed, verkefnastýra hjá UN Women Súdan.
UN Women í Súdan mun vinna verkefnið með súdönskum félagasamtökum, þrjú þeirra reka athvörf fyrir konur með fatlanir.
Mjög viðkvæmur hópur sem gleymist oft
Fatlaðar konur eru einn jaðarsettasti hópur fólks í Súdan og búa við margþætta mismunun. Með stríðsátökunum sem hófust í apríl 2023 hafa mikilvægir innviðir eyðilagst, þar með taldir vegir og sjúkrastofnanir. Þá hefur stríðið valdið algjöru hruni hagkerfisins í Súdan.
Þegar átökin hófust í Gezira-héraði í Súdan, var fólk með fatlanir skilið eftir, án undankomuleiðar. Þau kölluðu eftir aðstoð frá alþjóðlegum mannúðar- og hjálparsamtökum í landinu við að komast burt af svæðinu. Atvikið sýndi skýrt hversu berskjaldað og jaðarsett fatlað fólk er, sérstaklega þegar mannúðarkrísur bresta á.
Kassala-hérað er staðsett í austurhluta Súdan, við landamæri Eritreu. Á átta mánuðum hefur fólki á flótta fjölgað úr 166.288 í 258.846 í héraðinu. Fatlaðar konur á flótta hafa fundið öryggi í Kassala-héraði en mæta þó fordómum, mismunun og hafa takmarkað aðgengi að þjónustu eða atvinnutækifærum. Margar reyna að sjá fyrir sér og börnum sínum með því að selja te á mörkuðum.
Hver er staða kvenna á flótta í Súdan?

Fatlaðar konur í Súdan eru jaðarsettur hópur.
Konur eru um 69 prósent þeirra sem eru á flótta í Súdan (e. Internally displaced person). Þær búa ýmist í flóttamannabúðum eða inni á heimilum annarra – oft er það fólk sem þær þekkja lítið eða ekkert. Karlmennirnir í fjölskyldunum kjósa margir að vera eftir á átakasvæðum og reyna að verja hús og eignir gegn þjófnaði og skemmdarverkum sem framin eru af vígahópum.
Konur á flótta í Súdan hafa fá tækifæri til að afla sér tekna. Þær sem búa inni á heimilum annarra reyna þó flestar að taka þátt í útgjöldum heimilisins með ýmsum hætti, t.d. með sölu á mat eða tei á mörkuðum. Ferðalög til og frá mörkuðum eru hættuleg og margar konur kjósa því að ferðast í stærri hópum. Í Súdan eru stúlkur aldar upp við þann sið að þær annist fjölskyldur sínar. Margar stúlkur leggja sig því óafvitandi í mikla hættu við að reyna að uppfylla þá skyldu sína, þar með talið við söfnun eldiviðs og neysluvatns.
Í lok síðasta árs barst ný skýrsla frá UN Women um stöðu mála í Súdan. Þar kom í ljós að ásókn í þjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis jókst um 288% á milli ára. Þá hefur tilkynningum um stríðstengd kynferðisbrot (e. conflict related sexual violence) fjölgað á þeim svæðum hvar átökin eru sem hörðust.
UN Women á Íslandi þakkar öllum þeim sem studdu við verkefni UN Women í Súdan með kaupum á FO-húfunni. Öryggismiðstöðin var bakhjarl herferðarinnar og stóð undir öllum framleiðslukostnaði sem gerði UN Women á Íslandi mögulegt að senda svo háa fjárhæð til Súdan. FO-herferðin hefur frá upphafi stutt við verkefni sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi og styðja við þolendur.

