Fjórðungur stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára eru hvorki í námi né vinnu

Heim / Fréttir / Fjórðungur stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára eru hvorki í námi né vinnu

Alþjóðadagur stúlkubarnsins er þann 11. október.

Alþjóðdagur stúlkubarnsins er þann 11. Október. Um 600 milljónir stúlkna búa um allan heim, víða við skert tækifæri og réttindi samanborið við drengi. Þema alþjóðadagsins í ár er „Okkar tími er núna – okkar réttur, okkar framtíð“ (e. Our time is now – our rights, our future) og endurspeglar þann mikla kraft sem stúlkur búa yfir og nýta til að knýja fram feminískar breytingar í þágu samfélagsins.

  • 1 af hverjum 4 stúlkum á aldrinum 15 til 19 ára eru hvorki í námi né vinnu, samanborið við 1 af hverjum 10 drengum á sama aldri
  • 10 milljónir stúlkna eiga á hættu á að vera þvingaðar í barnahjónabönd
  • 60% þjóðríkja eru enn með lög sem mismuna stúlkum og konum, m.a. lög sem banna konum að erfa eignir og eiga eignir

Nú er þeirra tími

Tíu ár eru liðin frá því að Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu 11. október stúlkum. Á þeim tíu árum hafa stúlkur tekið forystu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og verið virkar í aktívisma. Framkvæmdastýra UN Women, Sima Bahous, segir þátttöku stúlkna leika lykilhlutverk ef koma á varanlegum breytingum í þágu jafnréttis innan samfélaga og á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal.

„Við þurfum upplýsingar sem taka tillit til aldurs og kyns til að geta hannað betri reglugerðir sem þjóna hagsmunum stúlkna. Við þurfum að búa þannig um hnútana að stúlkur um allan heim búi við öryggi, heilsu, menntun og tækifæri til að láta til sín taka.

„Ég sé fyrir mér heim þar sem þar sem sjálfræði og forysta stúlkna er viðurkennd, þær búa við full réttindi, eru lausar við ofbeldi og mismunun og hafa jafnt aðgengi að leiðtogastöðum. Á þessum Alþjóðadegi stúlkubarnsins skulum við halda áfram að vinna að þessu sameiginlega markmiði okkar. Stúlkur geta og verða að fá tækifæri til að halda áfram að leiða. Næsta áratuginn verðum við að setja stúlkur í forgang. Nú er þeirra tími,“ ritaði Sima Bahous í tilefni dagsins.

Related Posts
Top 5 donorsÚkraína, Kiyv