Fiðrildavika 2011: Konur í eldlínunni, vandaðir heimildaþættir á RÚV

Heim / Fréttir / Fiðrildavika 2011: Konur í eldlínunni, vandaðir heimildaþættir á RÚV

AnnieLennox_bp
UN Women á Íslandi mun standa fyrir fjáröflunarviku 12. – 18. september nk. með það að markmiði að hvetja Íslendinga til að standa með „systrum“ sínum víða um heim. Þetta er í annað sinn sem UN Women stendur fyrir fjáröflunarátaki en árið 2008 var haldin ógleymanleg Fiðrildavika þar sem að söfnuðust yfir hundrað milljónir.

Þema fjáröflunarvikunnar í ár verður einnig fiðrildið; þar sem ætlunin er að hafa fiðrildaáhrif héðan frá Íslandi því eitthvað lítið, eins og vængjasláttur fiðrilda, getur haft gríðarleg áhrif annars staðar í heiminum.

Í tilefni af Fiðrildavikunni mun RÚV sýna vandaða heimildaþætti sem bera heitið Women on the Frontline eða Konur í eldlínunni.Heimildaþættirnir fjalla um hinar ýmsu birtingamyndir ofbeldis gegn konum.

Þættirnir eru á dagskrá öll mánudagskvöld frá 22. ágúst til 12. september klukkan 18.30.  UN Women hvetur alla til þess að horfa á þessa mögnuðu þætti.

Nánar um Konur í eldlínunni:

Það ógnar lífi fleiri ungra kvenna en krabbamein, malaría og stríð. Það plagar eina af hverjum þremur konum í heiminum og skilur þær eftir með sár á sálinni til æviloka. Oftast nær er fjölskyldumeðlimur valdur að því. „Það“ er ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Konur í eldlínunni er heimildaþáttaröð sem söngkonan Annie Lennox hefur umsjón með og í henni er varpað ljósi á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Farið er inn á heimili, í þorp og borgir þar sem þetta stríð gegn konum er háð.

Í þáttunum fjórum sem RÚV sýnir er farið til Nepal, þar sem þúsundir kvenna ganga kaupum og sölum árlega; til Tyrklands, það sem svokölluð ærumorð tíðkast enn; Kongó, þar sem gríðarlegum fjölda kvenna hefur verið nauðgað í langri borgarastyrjöld, og til Kólumbíu þar sem konur hafa sætt pyntingum í skæruliðastríði.

Að lokinni sýningu hvers þáttar kynnir Þorsteinn Bachmann starfssemi UN Women stuttlega.

Related Posts