Eru til karla- og kvennastörf?

Heim / Fréttir / Eru til karla- og kvennastörf?

auglýsing fundurAtvinnuvegaráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð standa fyrir morgunfundi um jafnréttismál næstkomandi fimmtudag, 28. maí kl. 8.00 – 10.00 á Nauthóli undir yfirskriftinni „Eru til karla- og kvennastörf?“ Þar verður rætt hvernig fyrirtæki hafa náð að brjótast út úr hefðbundinni kynjaskiptingu í störfum. Það er ljóst að margir vinnustaðir eru enn kynjaskiptir hérlendis en þróunin hefur verið jákvæð undanfarin ár í átt að auknu jafnrétti á vinnumarkaði.

Fundurinn er ætlaður stjórnendum og öðrum sem áhuga hafa á auknu jafnrétti í íslensku viðskiptalífi. Á fundinum segja stjórnendur tveggja tæknifyrirtækja; Rio Tinto Alcan og Orkuveitu Reykjavíkur frá því hvernig unnið er að jafnrétti í þeirra fyrirtækjum og hvaða leiðir séu færar til að hafa jafna kynjahlutfall í störfum. Þar að auki flytur Sigurður Snævarr, hagfræðingur, erindi um niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun. Fundarstjóri er Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA.

Á fundinum veitir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,  Hvatningarverðlaun jafnréttismála í annað sinn. Markmiðið með Hvatningarverðlaununum er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Á síðasta ári féllu Hvatningarverðlaunin í skaut Rio Tinto Alcan en þá voru þau veitt í fyrsta sinn.

Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem hefur stuðlað að:
-auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa
– jöfnum launum kynjanna
– jöfnum hlutföllum kynjanna í stjórnendastöðum
-aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið

Dagskrá

8.00  Skráning og morgunkaffi

8.30 Fundur hefst

„Síðasta vígið: konur í iðnaði“ – Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi

„Orka kvenna, ein af auðlindunum! “ – Birna Bragadóttir, starfsþróunarstjóri Orkuveitu Reykjavíkur

„Niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun“ – Sigurður Snævarr, hagfræðingur

Afhending Hvatningaverðlauna jafnréttismála 2015 – Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra

10.00 Fundarlok

Fundarstjóri: Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA

Related Posts