
Aðalfundur UN Women á Íslandi fór fram þann 30. apríl síðastliðinn í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42. Sævar Helgi Bragason gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu eftir tveggja ára setu og tók Erik Figueras Torras sæti í stjórn í hans stað. Erik er fæddur árið 1967 og ólst upp í Barcelona. Hann er rafmagnsverkfræðingur að mennt með MBA gráðu frá IMD í Lausanne, Sviss. Hann starfar sem forstjóri Mílu en áður starfaði hann sem tæknistjóri Símans. Undanfarin ár hefur hann lagt sig fram við að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í tæknistörfum.
Ljósberar undirstaða að árangri UN Women á Íslandi

Að loknum aðalfundi er stjórn UN Women á Íslandi nú skipuð: Önnu Steinsen, formanni, Ólafi Elínarsyni, varaformanni, Árna Matthíassyni, Áslaugu Evu Björnsdóttur, Jóni Ragnari Jónssyni, Fidu Abu Libdeh, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Maríu Rún Bjarnadóttur, Erik Figueras Torras og Védísi Drótt Cortez, sem er fulltrúi ungmennaráðs UN Women á Íslandi.
Heildartekjur UN Women á Íslandi lækkuðu um 142.141 krónur á milli ára og námu rúmlega 280 m.kr. árið 2024. Helstu breytingar milli áranna 2023 og 2024 voru að stakir styrkir lækkuðu verulega. Framlag UN Women á Íslandi til alþjóðlegra verkefna UN Women fyrir árið 2024 lækkaði því á milli ára og nam tæplega 109 m.kr. Framlög UN Women á Íslandi gera UN Women kleift að styðja við verkefni eru hvað mest aðkallandi hverju sinni í gegnum kjarnasjóð UN Women. Sendir voru fjármunir til Gaza sem söfnuðust í neyðarsöfnun. Að vanda var stutt við hið mikilvæga starf Styrktarsjóðs Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum líkt og fyrri ár. Síðast en ekki síst runnu fjármunirnir sem söfnuðust í FO-herferðinni ársins 2024 til verkefna í Súdan.
Á árinu 2024 voru Ljósberar UN Women á Íslandi, líkt og undanfarin ár, undirstaðan að árangri samtakanna í fjáröflun, en langstærsti hluti framlaga UN Women á Íslandi til verkefna UN Women á heimsvísu kom frá ljósberum, eða um 90%.

