COP27: Aðildarríki hvött til að setja konur í forgrunn

Heim / Fréttir / COP27: Aðildarríki hvött til að setja konur í forgrunn
Pakistan, flóð, Ágúst 2022

Mikil flóð áttu sér stað í Pakistan í ágúst á þessu ári. Búist er við tíðari flóðum á svæðinu sökum loftslagsbreytinga.

Tuttugustu og sjöundu Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP27) lýkur í dag. Ráðstefnan hefur staðið yfir í tvær vikur.

Yfir 120 þjóðarleiðtogar sóttu ráðstefnuna, sem fram fór í Sharm el-Sheikh í Egyptalandi, og ræddu þau skref sem nauðsynleg eru að taka til að bregðast við loftslagshlýnun og -breytingum. Sima Sami Bahous, framkvæmdastýra UN Women, var á meðal gesta ráðstefnunnar. Hún ávarpaði ráðstefnuna og krafðist þess að hugað verði sérstaklega að áhrifum loftslagsbreytinga á líf og heilsu kvenna og stúlkna.

Jafnrétti er forsendan

Loftlagsbreytingar hafa ólík áhrif á okkur eftir búsetu, kyni og stöðu. Þær hafa til að mynda meiri áhrif á líf kvenna í fátækari ríkjum heims en okkar sem hér búum, og enn frekari áhrif á líf þeirra kvenna er búa á dreifbýlum svæðum þessara ríkja.

Bahous segir skort á kynjuðum upplýsingum og áætlunum á sviði loftslagsmála verða til þess að framþróun verður hægari en mannkynið þolir og áætlanir missa marks. Aukið kynjajafnrétti er bæði forsenda og drifkraftur þess að takmarka áhrif loftslagsbreytinga á líf okkar. Því án jafnréttis munu aðrar framfarir á sviði loftslagsbreytinga ekki duga til.

„Ég bið COP27 að grípa til sérstakra ráðstafana, þar með talið kynjakvóta, til að tryggja fulla og jafna þátttöku kvenna og stúlkna á öllum sviðum ákvarðanatöku og til að takast á við þann ójöfnuð sem ríkir í dag, þ.m.t. þegar kemur að aðgengi kvenna að auðlindum, fjármagni, tækni og landi og alveg sérstaklega þegar kemur að konum og stúlkum frá fátækari ríkjum heims og þeim sem búa við jaðarsetningu,“ sagði Bahous í ávarpi sínu.

Átök vegna ábyrgðar

Sértæk áhrif loftslagsbreytinga á líf og heilsu kvenna hafa hingað til vakið litla athygli ráðamanna. Aðeins 5 af þeim 75 aðilarríkjum SÞ sem voru viðstödd fund Öryggisráðsins árið 2019 töldu mikilvægt að taka mið af kyni við gerð áætlana um loftslagsvá.

Bahous kallaði jafnframt eftir því að COP27 aðildarríkin huguðu að því hvort orkuskipti hefðu jákvæð á konur og stúlkur og hvernig mætti tryggja að svo yrði. Í þriðja lagi, kallaði hún eftir aukinni fjárfestingu til kvenrekinna fyrirtækja og að stutt verði sérstaklega við konur og framtök þeirra í framtíðinni.

Fyrsta Lofstalagsráðstefna Sþ var haldin árið 1995, þegar aðildarríki Sþ hittust til að ræða þá ógn sem loftslagbreytingar eru. Ráðstefnan í ár er sú stærsta sem haldin hefur verið frá upphafi og jafnframt sú átakamesta, þar sem tekist var á um hvort efnameiri ríki, sem bera að mörgu leyti ábyrgð á ástandinu, eigi að kosta bætur til efnaminni ríkja, sem glíma helst við afleiðingar loftslagsbreytinga.

Related Posts
Afganistan, Herat