fbpx

Áríðandi fréttatilkynning frá UN Women á Íslandi og fleiri félagasamtökum vegna aðstæðna fólks á flótta sem vís­að hef­ur ver­ið úr allri þjón­ustu op­in­berra að­ila á Íslandi

Heim / Fréttir / Áríðandi fréttatilkynning frá UN Women á Íslandi og fleiri félagasamtökum vegna aðstæðna fólks á flótta sem vís­að hef­ur ver­ið úr allri þjón­ustu op­in­berra að­ila á Íslandi

Kona í flóttamannabúðum.  Mynd: UN Women

Tutt­ugu og þrjú fé­laga­sam­tök á Íslandi, þar á meðal UN Women á Íslandi, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vís­að hef­ur ver­ið úr allri þjón­ustu op­in­berra að­ila á Íslandi. 

Félagasamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum af afdrifum flóttafólksins, öryggi þeirra og mannlegri reisn og skora á stjórnvöld á Íslandi að tryggja þessa þætti auk þess sem þau kalla eftir samráðsfundi með stjórnvöldum.

Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:

 

Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.

Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.

Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.

Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til samráðsfundar nk. mánudag 21. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Reykjavík, 18. ágúst 2023

 

Barnaheill

Biskup Íslands

FTA – félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd

Geðhjálp

GETA hjálparsamtök

Hjálparstarf kirkjunnar

Hjálpræðisherinn á Íslandi

Íslandsdeild Amnesty International

Kvenréttindafélag Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands

No Boarders

Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunni

Rauði krossinn á Íslandi

Réttur barna á flótta

Samhjálp

Samtökin 78

Solaris

Stígamót

UNICEF á Íslandi

UN Women á Íslandi

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna

Þroskahjálp

ÖBÍ – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi

 

Related Posts
„Hira“ - Mynd: UN Women/Habib Sayed Bidell